- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Verðlaunanefnd Blaðamannaverðlauna BÍ óskar eftir tilnefningum til verðlauna fyrir árið 2018, en verðlaunin verða veitt í 16. skipti í mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er kl. 12 á hádegi föstudaginn 1. febrúar 2018.
Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt verður hægt að senda tilnefningar inn rafrænt með hnappi hér á forsíðu vefsins (hægra megin við aðalmynd,) þar sem segir "Blaðamannaverðlaun ársins 2018".
Tilnefningar dómnefndar verða sem fyrr segir gerðar kunnar viku áður en verðlaunin sjálf verða afhent í byrjun mars..