- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
BBC hefur nú formlega beðið reynda blaðakonu í yfirmannateymi stofnunarinnar afsökunar á því að hafa greitt henni lægri laun en karlkyns kollegum hennar í sambærilegum stöðum. Carrie Gracie sakaði stofnunina um kynbundið misrétti og brot á jafnréttislögum í vetur og sagði stöðu sinni sem yfirmaður Kínadeildar BBC lausri í janúar. Henni hafði verið boðin staðan á þeim grundvelli að launakjörin væru sambærileg kollegum hennar á öðrum alþjóðadeildum, en komst svo að því að karlar í sambærilegum stöðum voru að fá 50% hærra kaup.