- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Félagar í BÍ eru minntir á að aðalfundur Blaðamannafélags Íslands árið 2018 verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 26. apríl í Pressuklúbbnum að Síðumúla 23, 3. hæð, 108 Reykjavík þar sem félagið er til húsa og hefst fundurinn stundvíslega kl. 20.00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Skýrslur frá starfsnefndum
Kosningar: Aðeins barst framboð til formanns frá Hjálmari Jónssyni sitjandi formanni fyrir tilskilinn tímafrest og verður hann því sjálfkjörinn formaður.
Lagabreytingar
Önnur mál: Undir þessum lið verður borin upp tillaga að reglugerð um Neyðarsjóð BÍ
BÍ-félagar eru hvattir til að mæta