:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Starfsreglur

Eftirfarandi reglur gilda frá 1. júlí 2010:

 

 Laun í veikindum: Styrktarsjóður tryggir full laun allt að 400 þúsund kr. á mánuði í eitt ár eftir að veikindi hefjast að frádregnum veikindarétti samkvæmt kjarasamningum.


Fæðingarstyrkir og ættleiðing: Veittir eru styrkir vegna fæðingar barns.  Styrkirnir taka mið af lengd fæðingarorlofs og eru að lágmarki 105 þúsund kr. og að hámarki 210 þúsund kr.  Viðbótarstyrkur er veittur vegna útgjalda við ættleiðingu barns.


Krabbameinsskoðun:  Krabbameinsskoðanir eru greiddar að fullu. 


Hjartaskoðun:  Eftirlit vegna hjartasjúkdóma er greitt að fullu.


Lækniskostnaður:  Greiddur er árlegur almennur lækniskostnaður vegna sjóðfélaga umfram 12 þúsund kr. á ári að 27 þúsund kr., en þá stofnast réttur til útgáfu afsláttarskírteinis frá Sjúkratryggingum ríkisins.


Sjúkraþjálfun og –nudd:  Sjóðurinn greiðir helming kostnaðar vegna sjúkraþjálfunar og sjúkranudds að hámarki 40 þúsund kr. á ári.


Útfararstyrkir:  Sjóðurinn greiðir útfararstyrki vegna andláts félagsmanna.  Frá ársbyrjun 2006 nemur styrkfjárhæð 350 þúsund kr.


Endurhæfing:  Greiddur er helmingur kostnaðar vegna endurhæfingar hjá H-L stöðinni.


Tæknifrjóvganir:  Greiddur er 50% kostnaðar vegna tæknifrjóvgana samkvæmt gjaldskrá Tryggingastofnunar ríkisins.


Sálfræðikostnaður: Greitt er allt að 75 þús. á ári samkvæmt nánari reglum.  Skilyrði að meðferðin sé að læknisráði og þarf að framvísa beiðni frá trúnaðar- eða heimilislækni um að viðkomandi hafi þurft á meðferðinni að halda.  Greitt fyrir 15 skipti á hverjum tólf mánuðum að hámarki 5.000 kr. fyrir hvert skipti.


Heilsuhæli: Greitt er vegna dvalar á viðurkenndum heilsuhælum innlands allt að helmingur kostnaðar þó ekki meira en 75 þús. kr. á hverjum tólf mánuðum.


Gleraugu og heyrnartæki:  Tekið er þátt í kostnaði vegna kaupa á gleraugum og heyrnartækjum sem nemur helnmingi kostnaðar samkvæm framlögðu frumriti reiknings allt að kr. 50 þúsund á 36 mánaða fresti.


Lasermeðferð á augum: Greiddur er 50 þús. kr. styrkur vegna aðgerðar á hvoru auga.


Göngumæling/Innlegg: Greiddur er 75% kostnaðar, þó að hámarki 20 þús. kr. vegna göngumælingar og innleggja samkvæmt læknisráði.  Sambærileg endurgreiðsla vegna annarra minniháttar hjálpartækja.


Tannlæknakostnaður:  Greiddur er helmingur kostnaðar umfram 50 þúsund kr. að 300 þúsund kr. vegna tannlæknakostnðar af heilsufarsástæðum.  Styrkur getur þó aldrei oðrið hærri en 125 þúsund kr.


Heilsuefling: Veittur er styrkur vegna heilsueflingar sem getur numið allt að helmingi kostnaðar, þó ekki hærri en sem nemur 15 þús. kr. á hverju almanaksári gegn framvísun frumrits reiknings.  Ákvörðunin gildir vegna útgjalda sem stofnað hefur verið til á árinu 2010.

 

Mikil útgjöld vegna heilbrigðisþjónustu:  Ef um mikil útgjöld er að ræða vegna heilbrigðisþjónustu, sem ekki fellur undir neinn lið hér að ofan er hægt að sækja sérstaklega um styrk vegna þess til stjórnar sjóðsins.  Umsókn skal studd gögnum og reikningum vegna útlagðs kostnaðar.

 

 Almennt gildir að forsenda endurgreiðslu er framvísun frumrits fullgildra greiðslukvittana vegna útlagðs kostnaðar.  Hvað almennan lækniskostnað varðar nægir ljósrit af útgefnu afsláttarskírteini sem staðfesting á því  að kostnaður hafi náð 27 þúsund kr.  Annars þarf að framvísa greiðslukvittunum. Um greiðslu fæðingarstyrkja gildir að leggja þarf fram gögn frá fæðingarorlofssjóði Tryggingastofnunar ríksins um greiðslur frá sjóðnum í fæðingarorlofi.

                                                            Síðast breytt 12.  júlí 2010



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning