Blaðamannafélag Íslands á tvo sumarbústaði í Brekkuskógi í Biskupstungum og þriggja herbergja raðhús að
Seljahlíð 3c á Akureyri. Tvo svefnherbergi með fimm rúmum eru í bústöðunum en auk þess er gestahús við annan
bústaðinn og er þar svefnpláss fyrir fjóra til viðbótar. Félagið var einng með íbúð í Kaupmannahöfn til
leigu fyrir félagsmenn en því hefur verið hætt tímabundið vegna stöðu gjaldeyrismála.
Sumarleyfistíminn júní til ágúst er auglýstur sérstaklega á hverju vori og fer úthlutun eftir því hvort félagar hafa
fengið úthlutað áður og hversu lengi þeir hafa verið í félaginu. Sama gildir um úthlutun um páska. Á öðrum
tímum ársins er bústaðirnir til leigu fyrir félagsmenn. Rétt er að vekja athygli á haust- og vetrarleigu orlofshúsa
BÍ. Hægt er að bóka húsin sex mánuði fram í tímann og leigja þau um helgar eða í lengri tíma eftir
hentugleikum. Húsin í Brekkuskógi voru öll endurnýjuð síðastliðið vor og húsið á Akureyri fyrir fáum árum
síðan.
Í öllum húsunum eru öll helstu heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, eldavél með ofni, útigrill, tölvutenging, dvd
spilari, sjónvarp og allar helstu íslensku sjónvarpsrásirnar. Þá eru heitir pottar í bústöðunum í
Brekkuskógi. Svefnpláss er fyrir 5-7 manns í raðhúsinu á Akureyri, 5-6 í Litlu-Brekku og 9-10 manns í Stóru-Brekku.
Helgarleiga frá fös-sun er kr. 8 þús fyrir Litlu-Brekku og 11 þús fyrir Stóru-Brekku og raðhúsið á Akureyri fyrir fullgilda
félagsmenn. Greiða þarf við bókun annað hvort með greiðslukorti eða með því að leggja inn á reikning BÍ.
Hægt er að bóka með því að senda tölvupóst á bi@press.is eða með því að
hringja í síma 553 9155.
Vikur í orlofshúsum sumarið 2010
Umsóknarfrestur er til 9. apríl 2010 (Smellið á "Umsókn" hér til
vinstri)
Vika 1. 28. maí – 4. júní
Vika 2. 4. júní – 11. júní
Vika 3. 11. júní – 18. júní
Vika 4. 18. júní – 25. júní
Vika 5. 25. júní - 2. júlí
Vika 6. 2. júlí – 9. júlí
Vika 7. 9. júlí – 16. júlí
Vika 8. 16. júlí – 23. júlí
Vika 9. 23. júlí – 30. júlí
Vika 10. 30. júlí – 6. ágúst
Vika 11. 6. ágúst – 13. ágúst
Vika 12. 13. ágúst – 20. ágúst
Vika 13. 20. ágúst – 27. ágúst
Vika 14. 27. ágúst – 3. september





