I. kafli
Tilgangur BÍ
1.1.Félagið heitir Blaðamannafélag Íslands, BÍ, og er heimilsfang þess í Reykjavík. Tilgangur félagsins er að gæta faglegra og stéttarlegra hagsmuna félagsmanna í hvívetna.
1.2. Blaðamannafélaginu ber:
Að vinna að bættum launakjörum félagsmanna.
Að stuðla að betri aðstöðu félagsmanna til menntunar.
Að standa fyrir faglegri umræðu meðal félagsmanna.
Að standa vörð um hagsmuni stéttarinnar gagnvart vinnuveitendum, löggjafarvaldi og stjórnvöldum.
1.3. Félagið er aðili að Norræna blaðamannasambandinu NFJ, Alþjóða blaðamannasambandinu IFJ og Evrópska blaðamannasambandinu EFJ.
II. kafli
Aðild og inntökuskilyrði
2.1.Félagar geta orðið allir þeir, sem hafa fjölmiðlun að aðalstarfi eða eru fastráðnir starfsmenn ritstjórna á dagblöðum, vikublöðum, sértímaritum, landshlutablöðum, vefmiðlum og fréttastofum útvarps- og sjónvarpsstöðva, svo og aðrir þeir, sem fastráðnir eru við frétta- og fjölmiðlun á launakjörum, sem félagið hefur samið um eða gefið út taxta fyrir Þar með eru taldir blaðamenn, fréttamenn, útlitsteiknarar, prófarkalesarar, handritalesarar, ljósmyndarar, ritstjórar, ritstjórnarfulltrúar, fréttastjórar, dagskrárgerðarmenn fréttadeilda útvarps- og sjónvarpsstöðva hljóð- og tökumenn, tækni- og aðstoðarfólk á dagskrár- og fréttadeildum.
2.3.Hætti félagi starfi í blaðamennsku jafngildir það úrsögn hans úr félaginu. Blaðamenn, sem hafa starfað að blaðamennsku geta þó samkvæmt ákvörðun félagsstjórnar verið biðfélagar, enda óski þeir eftir því skriflega innan þriggja mánaða frá því hætt var störfum og inni af höndum greiðslur tilskilinna félagsgjalda. Sömuleiðis geta félagar, sem leggja fyrir sig lausavinnu (freelance) haldið fullri félagsaðild.
2.4. Félagsmaður, sem kominn er á eftirlaun og er ekki lengur í fullu starfi, skal vera undanþeginn greiðslu félagsgjalda. Hann skal þó sem áður njóta fullra félagsréttinda.
2.5. Biðfélagar hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum félagsins en ekki atkvæðisrétt.
2.6. Þeir, sem að mati stjórnar félagsins, fullnægja skilyrðum fyrstu greinar annars kafla laga þessara, verða félagar þegar við ráðningu.
2.7. Ágreiningsmálum er heimilt að vísa til félagsfundar til endanlegrar afgreiðslu.
III. kafli
Félagsgjöld og sjóðir
3.1. Félagsgjald skal vera 0,9% af heildarlaunum eins og þau eruá hverjum tíma hjá þeim félögum, sem eru fastráðnir eftir aðal- og sérkjarasamningum félagsins. Stjórn félagsins getur ákveðið að setja þak á félagsgjöld. Aðalfundur ákveður hverju sinni hvort og þá hversu hátt hlutfall félagsgjalda er lagt í varasjóð og orlofsheimilasjóð.
3.2. Biðfélagar greiða 0.5% af byrjunarlaunum í 2. flokki í félagsgjöld. Lausamenn greiða 0.7% af byrjunarlaunum í 2. launaflokki
félagsins miðað við janúar ár hvert.
3.3. Tekjur af höfundarréttargreiðslum skulu renna í Menningarsjóð.
3.4. Stjórn félagsins er heimilt að fyrirskipa félögum að leggja niður vinnu hjá vinnuveitanda, sem dregið hefur greiðsluskil í Menningarsjóð blaðamanna, Orlofsheimilasjóð, Endurmenntunarsjóð og Styrktarsjóð, þrjá mánuði eða lengur. Þetta skal þó aðeins gert að beiðni stjórna sjóðanna. Stöðvun skal tilkynnt með mánaðar fyrirvara.
IV. kafli
Aðalfundur
4.1.Aðalfundur félagsins skal haldinn ár hvert og fer hann með æðstu stjórn félagsins.
4.2. Aðalfundur skal haldinn í mars- eða aprílmánuði ár hvert. Til hans skal boðað með auglýsingu í Blaðamanninum og á heimasíðu félagsins með minnst hálfs mánaðar fyrirvara. Dagskrár skal getið í fundarboði. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.
4.3. Fyrir aðalfundi skulu liggja endurskoððair reikningar félagsins og sjóða þess og skýrslur um starfsemi liðins árs.
4.4. Aðalfundur kýs formann og sex menn í aðalstjórn og þrjá til vara. Framboði til formanns félagsins skal skila inn til skrifstofu félagsins a.m.k. viku fyrir boðaðan aðalfund. Kjörnefnd, sem kjörin skal í upphafi aðalfundar, skal skila inn tillögum að öðrum framboðum á aðalfundi. Öllum félögum BÍ er heimilt að bjóða sig fram sem aðalmenn eða varamenn á sjálfum fundinum. Formaður er kosinn til eins árs í senn, aðrir stjórnarmenn til tveggja ára. Annað árið skal kjósa 3 aðalmenn og 1 varamann, og hitt árið 3 aðalmenn og 2 varamenn. Ef formaður er kosinn úr hópi þeirra stjórnarmanna, sem eiga eitt starfsár eftir, skal kjörinn maður í stjórnina til eins árs í hans stað. Sama gildir ef varastjórnarmaður er kjörinn í aðalstjórn. Hætti aðalstjórnarmaður á kjörtímabilinu, gengur sá varamaður, er flest atkvæði hlaut á aðalfundi, upp í aðalstjórnina. Séu varastjórnarmenn sjálfkjörnir skal aðalfundurinn engu að síður ákvarða röð þeirra með hlutkesti.
4.5. Siðanefnd BÍ skipa fimm menn. Aðalfundur kýs formann, varaformann og meðnefndarmann og varamenn þeirra. Útgefendur tilnefna einn í nefndina og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands einn. Nefndin skal taka til meðferðar og fella úrskurði í þeim málum, sem henni ber að fjalla um samkvæmt siðareglum félagsins. Nefndin skal leggja fram yfirlit um störf sín á aðalfundi.
4.6. Aðalfundur kýs þrjá menn í stjórn Menningarsjóðs BÍ, sem jafnframt annast málefni Orlofsheimilasjóðs og endurmenntunar- og háskólasjóðs
4.7.Aðalfundur kýs þrjá menn í stjórn Styrktarsjóðs BÍ og þrjá til vara.
4.8. Aðalfundur kýs tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara og skulu þeir endurskoða reikninga félagsins, menningarsjóðs, orlofsheimilasjóðs og annarra sjóða.
4.9. Aðalfundur kýs fimm manna úthlutunarnefnd vegna Blaðamannaverðlauna
V. kafli
Félagsstjórn
5.1.Formaður kallar saman fundi í stjórn félagsins og stýrir þeim en varaformaður í forföllum hans. Félagsstjórn ræður framkvæmdastjóra félagsins og annað starfslið og hefur yfirumsjón með starfsemi félagsins.
5.2. Félagsstjórn kýs úr sínum röðum varaformann, ritara og gjaldkera á fyrsta fundi sínum eftir hvern aðalfund. Formaður, varaformaður, ritari og gjaldkeri mynda sérstaka framkvæmdanefnd, sem hafa skal umsjón með daglegum rekstri félagsins í samræmi við samþykktir félagsfunda og félagsstjórnar.
5.3. Félagsstjórn boðar til almennra félagsfunda og annast útgáfu félagstíðinda.
5.4. Heimilt er einstökum starfs- eða faghópum innan BÍ að stofna sérstakar félagsdeildir. Stjórnir deildanna skulu skipaðar þremur mönnum, sem kjósa skal á deildarfundi fyrir aðalfundi BÍ ár hvert. Deildarfundur kýs formann sérstaklega, en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum ritara og gjaldkera. Stjórnin kallar saman deildarfundi þegar þurfa þykir og stýrir starfi deildarinnar í samráði við aðalstjórn félagsins. Stofnun einstakra félagsdeilda skal háð samþykki stjórnar BÍ og aðalfundar lög deildarinnar hljóta staðfestingu hennar og aðalfundar áður en þau öðlast gildi.
5.5. Lausráðnir blaða- og dagskrárgerðarmenn sem vinna að fréttatengdu efni, mynda sérstaka félagsdeild, er tekur til landsins alls. Stjórn hennar skal kosin á deildarfundi í ársbyrjun ár hvert á sama hátt og tilgreint er í 5.4. Inntökubeiðnir skulu hljóta samþykki stjórnar BÍ. Lög deildarinnar skulu hljóta staðfestingu stjórnar BÍ.
VI. kafli
Trúnaðarmenn
6.1.Félagsmenn á hverjum vinnustað skulu velja sér trúnaðarmenn og tilkynna kjör þeirra á aðalfundi. Trúnaðarmenn mynda trúnaðarmannaráð.
6.2. Félagsstjórn skal efna til funda með trúnaðarmannaráði minnst tvisvar á ári. Nýjum trúnaðarmönnum skal kynna rækilega efni Reglugerðar um réttindi og skyldur trúnaðarmanna Blaðamannafélags Íslands.
VII. kafli
Kjarasamningar og vinnudeilur
7.1.Blaðamannafélag Íslands fer með samningsrétt fyrir alla félagsmenn, einnig starfsmenn ríkisfjölmiðla, óski meirihluta þeirra í BÍ eftir því. Komi til slíks, skal lögum félagsins breytt þannig, að starfsmenn ríkisfjölmiðla hafi sömu réttindi og skyldur og aðrir félagar í BÍ.
7.2. Samningaráð skipa sjö félagsmenn. Formaður og varaformaður skulu sitja í nefndinni en aðalfundur kýs fimm aðalmenn og þrjá til vara. Varamenn ganga upp í samninganefndina með sama hætti og varamenn í félagsstjórn, sbr. 4.4. Ráðið kýs sér formann.
7.3. Samningaráðið annast kröfu- og samningagerð félagsins vegna kjarasamninga í samráði við félagsstjórn, trúnaðarmannaráð og samninganefnd tiltekins vinnustaðar eftir atvikum og í samræmi við ákvarðanir félagsfundar.
7.4. Félagsstjórn, samningaráð og trúnaðarmannaráð hafa heimild til að boða og aflýsa verkfalli eða öðrum kjaradeiluaðgerðum að fengnu samþykki félagsfundar eða fundar viðkomandi starfsmanna á einstökum vinnustöðum, eins og við á hverju sinni.
7.5. Félagsstjórn, samningaráði og trúnaðarmannaráði er heimilt að veita ritstjórum eða fréttastjórum
ljósvakamiðla undanþágu í verkfalli, enda gangi þeir á engan hátt í störf annarra félagsmanna.
7.6. Stjórn Lausamannadeildar gerir samninga við einstaka útgefendur eða samtök þeirra. Slíkir samningar taka gildi eftir að hafa hlotið
samþykki félagsstjórnar, samningaráðs og trúnaðarmannaráðs.
7.7. Starfsmönnum tiltekins vinnustaðar er heimilt að gera sérsamning um kaup og kjör. Skulu þeir tilkynna samningaráði um það að minnsta kosti tólf vikum áður en kjarasamningur rennur út. Í hverri samninganefnd skulu sitja a.m.k. tveir fulltrúar samningaráðs, en þrír eða fimm fulltrúar starfsmanna, þar á meðal trúnaðarmaður/menn þeirra. Sérsamningar skulu staðfestir af félagsstjórn, samningaráði og trúnaðarmannaráði áður en þeir eru bornir undir atkvæði viðkomandi félagsmanna sbr. 7.8.
7.8. Nýgerðir kjarasamningar skulu kynntir og bornir undir atkvæði á almennum félagsfundi eða fundi viðkomandi félagsmanna á tilteknum vinnustað, þegar það á við, eigi síðar en tveimur vikum eftir að þeir eru undirritaðir og skal fundurinn auglýstur á heimasíðu BÍ. Atkvæðagreiðsla um kjarasamninga skal vera leynileg. Einnig er heimilt að hafa póstatkvæðagreiðslu um kjarasamninga, sbr. ákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr 80/1938. Einfaldur meirihluti dugir til að samþykkja eða fella kjarasamninga.
VIII. kafli
Félagsskírteini
8.1.Sérhver félagsmaður skal fá félagsskírteini félagsins eftir fjögurra mánaða starf, enda haldi hann áfram störfum við fjölmiðlun. Í skírteininu skal vera mynd af félagsmanni ásamt upplýsingum um nafn, kennitölu, starfsheiti og vinnustað.
8.2. Skírteinið skal jafnan endurnýjað í byrjun árs, enda hafi félagsmaður þá greitt félagsgjöld sín.
8.3. Einungis handahafa er heimilt að nota skírteinið. Sé það misnotað, má innkalla það um lengri eða skemmri tíma.
8.4.Félagið gefur einnig út blaðamannaskírteini til þeirra félagsmanna sem þurfa á þeim skírteinum að halda vegna starfa sinna, þ.e. þeirra sem fastráðnir eru til blaðamanns- og fréttamannastarfa á ritstjórnum og fréttastofum og þeirra sem eru virkir í starfi sem lausamenn. Hægt er að skjóta ágreiningi um útgáfu blaðamannaskírteinis til félagsstjórnar og úrskurðar hún um ágreining.
IX. kafli
Félagaskrá
9.1.Félagsstjórn skal halda skrá yfir félagsmenn. Listi yfir félagsmenn skal birtur í félagstíðindum og heimasíðu BÍ.
X. kafli
Lagabreytingar
10.1.Félagslögum má aðeins breyta á aðalfundi og teljast lagabreytingar því aðeins samþykktar, að tveir þriðju hlutar fundarmanna greiði þeim atkvæði. Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn félagsins fyrir 1. febrúar. Þær skulu sendar félagsmönnum með fundarboði.





