:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Erlend samskipti


Blaðamannafélagið er aðili að Alþjóða blaðamannasambandinu IFJ, (International Federation of Journalists) og evrópudeild sambandsins (European Federation of Journalists). Innan IFJ eru nú hátt í 300 þús. blaða- og fréttamenn í meira en 200 löndum, en höfuðstöðvar sambandsins eru í Brussel.
Þá hefur BÍ um áratugaskeið verið virkur aðili í Norræna blaðamannasambandinu NJF. Norrænir blaða- og fréttamenn hafa með sér mikið og gott samstarf á ýmsum sviðum, bæði hvað snertir kjaramál og ýmis fagleg viðfangsefni.
Fulltrúi BÍ á þó ekki þessi misserin sæti sem aðalmaður í stjórn Norrænu blaðamannamiðstöðvarinnar NJC (Nordisk Journalist Center) sem er til húsa í Árósum í Danmörku, heldur situr þar fulltrúi  menntamálaráðuneytisins samkvæmt einhliða ákvörðun ráðherra. Stofnunin er rekin af Norðurlandaráði. http://www.njc.dk/


Á tenglasíðunni má finna alla áhugaverða tengla innanlands sem utan.

Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning