:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Endurmenntunar og Háskólasjóður


Hærri námsstyrkir
Stjórn Endurmenntunar- og háskólasjóðs blaðamanna auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum, vegna lengra eða skemmra náms fastráðinna félaga í BÍ tvisvar á ári, vor og haust.  Umsóknarfrestur er auglýstur með góðum fyrirvara hér á heimasíðunni og í Blaðamanninum, félagsriti BÍ.  Rétt í sjóðnum eiga allir fullgildir, fastráðnir félagar í BÍ, sem greitt hefur verið af í sjóðinn í a.m.k. sex mánuði.
Umsóknum er hægt að skila til skrifstofu BÍ á sérstökum eyðublöðum sem þar fást, en einnig er hægt að fylla út umsóknareyðublað hér á heimasíðu BÍ
Námskeið sem koma til greina við eru m.a:



A) Nám við Háskóla Íslands
B) Annað lengra nám hérlendis
C) Endurmenntun í erlendum skólum s.s. hjá NJC í Árósum
D) Önnur sérstök námskeið erlendis


Styrkir vegna styttri námskeiða hér heima eru greiddir á skrifstofu BÍ að námi loknu gegn framvísun reiknings fyrir þátttökugjöld og staðfestingu á þátttöku.


Styttri námskeið
Allir fastráðnir félagsmenn geta fengið endurgreiddan helming kostnaðar vegna námskeiða að ákveðnu hámarki ár hvert. Þá geta félagar í lausamannadeild einnig sótt um styrk til félagsins til endurmenntunar.
Styrkur er greiddur út að loknu námskeiði og þarf að framvísa kvittun fyrir námsskeiðsgjaldi og staðfestingu á þátttöku í námskeiðinu.


Lengri námskeið og námsferðir
Þeir sem hyggjast legga stund á lengra nám, t.d. við Háskóla Íslands, eða fara á námskeið eða til námsdvalar erlendis, geta sótt um sérstakan styrk úr Endurmenntunarsjóði BÍ. Auglýst er eftir umsóknum og úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, í apríl og september. Umsóknir skulu sendar til skrifstofu BÍ þar sem hægt er að fá frekari upplýsingar.

Margir félagsmenn hafa notfært sér þennan möguleika til að stunda nám við Háskóla Íslands og aðra sérskóla auk þess sem margir hafa sótt nám við Norrænu blaðamannamiðstöðina NJC í Árósum í Danmörku.


Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning