:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Brekka


Brekka í Biskupstungum
Orlofshús BÍ eru í Brekkuskógi sem er um 15 km. austan við Laugarvatn. Þegar ekið er frá Laugarvatni að Geysi þá er afleggjari í orlofslandið á vinstri hönd, skömmu eftir að farið er yfir Brúará. Vegurinn er vel merktur með skilti á hægri hönd, en auk BÍ eru m.a. í orlofslandinu, BHM,
STÍS og fleiri.

Brekkuskógur er í Biskupstungum í Árnessýslu, ekki langt frá byggðarkjarnanum við Laugarvatn. Biskupstungurnar liggja á milli Brúarár og Hvítár.  Jarðhiti er mikill í Biskupstungum og þar eru mörg þekkt hverasvæði.  Mikill ferðamannaiðnaður er í Tungunum enda eru þar fjölsóttustu ferðamannastaðir á Íslandi. (Sjá leiðbeiningar)


Með því að smella hér er hægt að skoða  myndir frá Brekku.



Í Brekkuskógi á Blaðamannafélagið 2 orlofshús.  (Sjá frekari leiðbeiningar) Í húsunum eru tvö svefnherbergi, stór stofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu.  Svefnpláss er fyrir 5 auk smábarnarúms. Öll venjuleg heimilstæki, sjónvarp, myndbandstæki og DVD spilari og gasgrill fylgja bústöðunum. Í báðum bústöðunum eru heitir pottar (sjá sérstakar leiðbeiningar um notkun þeirra) og öðrum bústaðnum fylgir einnig gestahús með salerni og sturtu, þar sem fjórir til viðbótar geta sofið.
Vikuleiga sumarið 2010 er 13 þús. kr. fyrir smærra húsið og 18 þús. kr. fyrir bústaðinn með gestahúsinu. Helgarleiga veturinn 2010 til 2011 er 8.000 kr. fyrir minna húsið og 11.000 kr. fyrir það stærra. Sólarhringsleiga í miðri viku er 3.500 kr. og aukasólarhringur með helgi er kr. 2.000.  Greiða ber leigu við úthlutun, annars gengur hún til baka.

Fjórar sundlaugar eru á svæðinu, í Úthlíð skammt frá Brekku, við Hótel Geysi, í Reykholti í Aratungu og að sjálfsögðu á Laugarvatni. Þá er ekki langt að fara í skemmtilega laug á Skeiðum.

Margvísleg afþreying er einnig í boði á svæðinu, s.s.
Siglingar í Hvítá, pantanir í síma 567-7000.
Hestaleiga í Kjarnholti, pantanir í síma: 486-8998 og í
Brattholti s: 486-8941.
Ferðir á Langjökul, pantanir í síma: 568-8888.
Golf og hestaleiga í Úthlíð, pantanir í síma: 486-8770.
Húsdýragarðurinn í Laugarási, paradís fyrir börnin.
Sími: 486-8907.

Fjöldi verslana og veitingastaða er á svæðinu s.s
Söluskáli í Úthlíð og við Geysi. Kaupfélagið á Laugarvatni, Bjarnabúð í Aratungu og Shellskálinn í Laugarási.


Heitur pottur í Brekku
Stillingar (myndskýringar)



Til dvalargesta í Brekku
Orlofshús BÍ eru í Brekkuskógi sem er um 15 kílómetra fyrir austan Laugarvatn. Þegar ekið er frá Laugarvatni og að Geysi er afleggjari upp í orlofslandið á vinstri hönd skömmu eftir að farið er yfir Brúará. egurinn er vel merktur með skilti en auk Bí eru í orlofslandinu BHM, RSÍ og TÍS.
Hús BÍ standa ofarlega í landinu. egurinn greinist í tvígang og skal taka afleggjarinn til vinstri í bæði skiptin uns hús BÍ í blasa við.Í orlofshúsunum er allt sem tilheyrir venjulegu heimili. Í húsunum eru tvö svefnherbergi, stór stofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. 


Svefnpláss er fyrir 5 auk smábarnarúms. Sængur og koddar fyrir fimm fylgja hvoru húsi. Öll venjuleg heimilstæki, sjónvarp, útvarp með geislaspilara og gasgrill fylgja bústöðunum. Í báðum bústöðunum eru heitir pottar (sjá sérstakar leiðbeiningar um notkun þeirra) og öðrum bústaðnum fylgir einnig gestahús með salerni og sturtu, þar sem fjórir til viðbótar geta sofið í hjónarúmi og koju og þar eru einnig sængur og koddar fyrir fjóra.Í eldhúsi er meðal annars ísskápur, örbylgjuofn, eldavél, lítill ofn, kaffikanna, hraðsuðuketill, samlokugrill og vöfflujárn, auk alls venjulegs búnaðar. Sjónvarp er í stofu og DVD spilari.  Gasgrill er í útigeymslu. Ef kútur er tómur þá endurnýið gasbirgðir á næstu bensínstöð og fáið síðan endurgreitt á skrifstofu BÍ gegn framvísun kvittunar. Tryggið að alltaf sé gas á kútnum þegar þið haldið heim. Enginn vill koma að gaslausu grilli. Gestir í orlofshúsunum þurfa að hafa með sér: sængurver, koddaver og lök, auk handklæða, viskustykkja og borðklúta. Einnig er vissara að koma með handsápu, wc-pappír og uppþvottalög. Aðrar hreinlætisvörur eiga að vera á staðnum.

Við komuna í Brekku skal byrja á því að kveikja á öryggisrofa í rafmagnstöflu sem er staðsett í geymslu. Þessi rofi er fyrir hitakút hússins. Jafnframt skal hækka hita á ofnum eftir þörfum.  Stranglega er bannað að reykja inn í húsunum.

Við brottför að sumri skal stilla ofna á 10 en á 15 að vetrarlagi. Við brottför ber að hreinsa húsin vandlega, þrífa ísskáp, skúra yfir gólf og dusta mottur. Gasgrillið verður að þrífa vandlega og sama gildir um heitu pottana. Allt rusl á að setja í poka og koma fyrir í ruslagámum við þjóðveginn. Loks ber að kvitta fyrir dvölina með skráningu í gestabók hússins.

Ef eitthvað alvarlegt kemur upp á má hafa samband við hjónin í Brekku, sem er býlið á jörðinni aðeins austar og neðan við þjóðveginn. Einnig að láta skrifstofu BÍ vita strax og heim er komið ef eitthvað þarfnast lagfæringar.

Nýtið Brekku allt árið um kring
Sumarhúsin í Brekku eru ekki síður notarlegur og góður dvalarstaður fyrir þreytta blaðamenn á veturna heldur en á sumrin. Þegar sumartíminn er á enda, er hægt að fá úthlutað ýmist heilum vikum, helgum, eða einstökum dögum í paradísinni í Brekku og það sama á við um íbúðina á Akureyri. Hafið samband við skrifstofu BÍ í tíma og tryggið ykkur daga í Brekku eða fyrir norðan.

Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning