:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Vill gefa ungmennum áskrift að dagblaði

Þingmaður Verkamannaflokksins í Skotlandi, Pauline McNeil, vill að stjórnvöld í Skotlandi sjái til þess að allir 18 -24 ára Skotar fái ókeypis áskrift að dagblaði. Mcneil er talsmaður flokksins í menningarmálum í Skotlandi.  Hún hefur einnig stungið upp á því að samhliða einbeiti blöðin sér að því að tengja ungt fók meira við fréttir og fréttatengt efni, t.d. með því að skipuleggja heimsóknir ungmenna inn á ritstjórnarskrifstofur. Blaðamannasamband Bretlands hefur fagnað hugmyndum þingmannsins. Þessa tillögu byggir þingmaðurinn á reynslu Frakka þar sem svipað átak varðandi ungt fólk og dagblöð hefur verið framkæmt eins og greint var frá í síðasta Blaðamanni. Þá hafa sum þýsk dagblöð ráðið sérstaka ungmennaritstjóra til að reyna að höfða meira til ungra lesenda og stöðva þann samdrátt sem er að verða í dagblaðalestri.
Sjá meira hér



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning