:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Vg vill lögbinda uppsagnarvernd blaðamanna

Katrín Jakobsdóttir, ráðherra fjölmiðlamála og varaformaður Vg
Katrín Jakobsdóttir, ráðherra fjölmiðlamála og varaformaður Vg
„Vinstri græn hvetja fag- og stéttarfélög blaðamanna til dáða í baráttu fyrir frjálsri fjölmiðlun á Íslandi, enda er hún hornsteinn lýðræðisins og tjáningarfrelsisins. Blaðamönnum verður að tryggja uppsagnarvernd með lögum, svo öflug, gagnrýnin blaðamennska hætti að vera ávísun á brottrekstur, eins og nú hefur verið raunin. Einnig þarf aukna lagavernd fyrir þá sem veljast til trúnaðarstarfa fyrir stéttina.“ Þannig hljóðar einn hluti af umfangsmikilli ályktun um fjölmiðla, flokksráðsfundar Vinstri grænna sem haldinn var á Akureyri um helgina.  Í ályktuninni er með mjög afdráttarlausum hætti sagt að fjölmiðlar í landinu, bæði RÚV og einkafjölmiðlar, séu misnotaðir af eigendum og stjórnendum og blaðamenn sem enn starfi búi við „mikið atvinnuóöryggi, sem aftur leiðir til þess að þeir geta átt erfitt með að standa vörð um sjálfstæði sitt gagnvart yfirmönnum sínum og eigendum fjölmiðlanna, bæði varðandi efnistök og óraunhæfar kröfur um vinnutíma og afköst.“

Þá hafa Vinstri grænir áhyggjur af kynjaskiptingu viðmælenda fjölmiðla en vegna bakslags í jafnréttismálum á miðlunum sé konum að fækka í hópi viðmælenda.  Þessi ályktun er sérstaklega áhugaverð í ljósi þess að ráðherra fjölmiðlamála, katrín Jakobsdóttir, er varaformaður flokksins. Ályktunin í heild er svona:

Fjölmiðlar– Ályktun flokksráðsfundar Vg
Flokksráðsfundur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, haldinn á Akureyri 15.-16. janúar 2010, lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu fjölmiðla á Íslandi. Mikill samdráttur á fjölmiðlamarkaði hefur leitt til þess að blaðamönnum er sniðinn óheyrilega þröngur stakkur. Álag á fjölmiðlum er mikið og þeir blaðamenn sem enn ekki hafa orðið niðurskurðarhnífnum að bráð búa við mikið atvinnuóöryggi, sem aftur leiðir til þess að þeir geta átt erfitt með að standa vörð um sjálfstæði sitt gagnvart yfirmönnum sínum og eigendum fjölmiðlanna, bæði varðandi efnistök og óraunhæfar kröfur um vinnutíma og afköst. Fjölmiðlum er nú grímulaust beitt sem áróðurstækjum eigenda sinna. Ráðning ritstjóra Morgunblaðsins og sviptingar í mannahaldi þar og á fleiri miðlum eru skólabókardæmi um slíkt. Rekstur og tilgangur 365 miðla er illskiljanlegur í ljósi hrunsins og framtíð allra miðla óviss.
 Ljóst er að mikið bakslag hefur orðið í jafnréttismálum innan fjölmiðlanna. Hæfum og reyndum konum hefur verið sagt upp störfum á sama tíma og karlar með minni reynslu og menntun eru keyptir milli miðla. Skortur á konum í fjölmiðlastétt leiðir einnig til þess að konum fækkar í hópi viðmælenda fjölmiðla, sem er háalvarlegt á tímum sem þessum þegar endurmótun íslensks samfélags á sér stað. Konur verða að vera þátttakendur í henni til jafns á við karla.
Þá hefur bæði núverandi og fyrrverandi formanni Blaðamannafélags Íslands og varaformanni félagsins, sem allar eru konur, verið sagt upp störfum með stuttu millibili. Á sama tíma voru aðrir blaðamenn, allt karlar, ráðnir til starfa á viðkomandi fjölmiðlum. Þetta eru ekki góð skilaboð til stéttarinnar og stéttarbaráttu blaðamanna. Vinstri græn hvetja fag- og stéttarfélög blaðamanna til dáða í baráttu fyrir frjálsri fjölmiðlun á Íslandi, enda er hún hornsteinn lýðræðisins og tjáningarfrelsisins. Blaðamönnum verður að tryggja uppsagnarvernd með lögum, svo öflug, gagnrýnin blaðamennska hætti að vera ávísun á brottrekstur, eins og nú hefur verið raunin. Einnig þarf aukna lagavernd fyrir þá sem veljast til trúnaðarstarfa fyrir stéttina.
Flokksráðsfundur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs áréttar mikilvægi þess að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að búa svo um hnútana að hér geti frjálsir fjölmiðlar þrifist. Að sama skapi er mikilvægt að standa vörð um sjálfstæði Ríkisútvarpsins og það hlutverk sem því er ætlað í íslensku samfélagi. Lagaumgjörð, stjórnun og rekstrarfyrirkomulag sem nú gildir um RÚV, hefur ekki tryggt hlutverk miðilsins, sem virðist undir sömu sök seldur og aðrir miðlar. Stjórnendur RÚV hafa heldur ekki borið gæfu til að skilja hlutverk stofnunarinnar. Áherslan er áfram á ungar, vellaunaðar sjónvarpsstjörnur, forstjóralaun og jeppa, og niðurskurðartillögur ganga helst út á tilraunir til að losna við láglaunaða, reynda útvarpsmenn, sem ætti að öðrum ólöstuðum helst að halda í.
Flokksráðsfundur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs hvetur ráðherra flokksins og þingmenn til áframhaldandi baráttu í þágu góðrar og frjálsrar fjölmiðlunar á Íslandi. Nú þarf að lyfta grettistaki. Nú þarf róttækni.



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning