:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Vefurinn styður við prentútgáfuna

Öfugt við það sem oft er haldið fram, hafa vefsíður dagblaða aukið möguleika og vægi dagblaðanna mikið ef marka má nýja skýrslu sem birt hefur verið í Ástralíu. Þar kemur fram að í staðinn fyrir að vefsíður dagblaða skemmi fyrir prentuðum útgáfum blaðanna með því að leiða lesendur frá lestri á hinna prentuðu blaða yfir á netið, þá styðji netið við prentútgáfuna og hjálpi henni að halda lífi út í gegnum daginn. Notkun á prentmiðlinum og netinu sé ekki sama eðlis og hlutverk þessara gátta sé misjafnt, en þær styðji hvor  aðra. Þessa skýrslu unnu samtökin The Newspaper Works, sem eru frjáls félagssamtök sem einbeita sér að því að kynna dagblaðaiðnaðinn.

Skýrslan byggir á víðtækri könnun þar sem rúmlega 1.000 Ástralar á aldrinum 16 – 69 ára voru spurðir um fjölmiðlanotkun sína.  Í ljós kom að dagblöð og vefsíður þeirra eru algengasta uppspretta frétta hjá fólki og þar af var um 37% svarenda sem nefndu dagblöðin ein og sér sem fréttauppsprettu.
Sjá einnig hér



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning