Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna 2009

Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna hefur sent frá sér tilnefningar í þeim þremur flokkum sem Blaðamannaverðlaunin eru veitt í. Þessir flokkar eru: Rannsóknarblaðamennska ársins 2009: Besta umfjöllun ársins 2009; Blaðamannaverðlaun ársins 2009. Þrjár tilnefningar eru í hverjum flokki, alls 9 tilnefningar, en á laugardaginn eftir viku verður tilkynnt um hver hlýtur verðlaunin í hverjum flokki. Tilnefningarnar eru þessar:
Rannsóknarblaðamennska ársins 2009:
Guðný Helga Herbertsdóttir, Stöð 2, fyrir fjölmargar áhugaverðar
fréttir um skattalega meðferð mála í tengslum við fjármálakreppuna og fyrir fjölbreyttar og upplýsandi fréttir um hrunið
hér heima og erlendis.
Ingi F. Vilhjálmsson, DV, fyrir skrif um kúlulán og fjölmargar afhjúpandi fréttir um viðskiptahætti auðmanna og
stórfyrirtækja í aðdraganda og eftirmála hrunsins.
Þórður Snær Júlíusson, Viðskiptablaðinu (áður Morgunblaðinu) fyrir upplýsandi fréttir og greinaflokka um
aflandsfélög og skattaskjól, einkavæðingu bankanna og umsvifamikil viðskipti stórfyrirtækja.
Besta umfjöllun ársins 2009:
Magnús Halldórsson, Ragnar Axelsson ásamt Ágústi Inga Jónssyni,
Morgunblaðinu, fyrir skilmerkilega, myndræna og upplýsandi umfjöllun sem varpaði ljósi á erfitt ástand á fasteignamarkaði
á Íslandi.
Lóa Pind Aldísardóttir, Stöð 2, fyrir vandaðar og aðgengilegar fréttaskýringar um flókin mál, sem varða almenning
miklu svo sem um fjármál heimilanna og aðild Íslands að ESB.
Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu, fyrir skilmerkilegan og
ítarlegan fréttaskýringarflokk um endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Blaðamannaverðlaun ársins 2009:
Gunnar Karlsson, Fréttablaðinu fyrir „Spottið“ og Halldór Baldursson,
Morgunblaðinu, fyrir „Halldór“, áhrifamiklar teikningar þar sem brennandi samfélagsmál eru sett í hárbeitt en um leið skoplegt
ljós.
Jóhann Hauksson, DV, fyrir leiðandi umfjöllun um fall og myndun ríkisstjórna og fréttaskýringar um mikilvæg
þjóðfélagsmál.
Þóra Arnórsdóttir, Kastljósi RÚV, fyrir mjög vel undirbúin og útfærð viðtöl við innlenda og erlenda
sérfræðinga um ýmis málefni sem hátt bar í þjóðfélagsumræðunni.





