Tilnefningafrestur til 29. janúar
Almennt - 05.janúar 2010

Ákveðinn hefur verið skilafrestur á tilnefningum vegna Blaðamannaverðlauna ársins 2009. Fresturinn er til FÖSTUDAGSINS 29. JANÚAR 2010
KL 16:00.
Eins og áður eru verðlaunin eru veitt í þremur flokkum en þeir eru þessir:
• Besta umfjöllun ársins 2009
• Rannsóknarblaðamennska ársins 2009
• Blaðamannaverðlaun
ársins 2009
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í
Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt verður á
næstu dögum settur inn hnappur hér á heimasíðuna þar sem hægt verður að tilnefna með rafrænum hætti.
Tilnefningar dómnefndar verða síðan gerðar kunnar í ferúar og viku síðar verða verðlaunin sjálf afhent.





