Þórður Snær, Lóa og Jóhann fá verðlaunin

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands voru afhent síðdegis við athöfn í Gerðarsafni í Kópavogi. Samhliða voru
afhent verðlaun í blaðaljósmyndarakeppninni Myndir ársins. Þrír blaðamenn voru verðlaunaðir , einn í hverjum flokki
verðlaunanna.
Í flokknum „Rannsóknarblaðamennska ársins 2009“ fékk Þórður Snær Júlíusson
verðlaunin, en aðrir sem tilnefndir höfðu verið voru Ingi F. Vilhjálmsson og Guðný Helga Herbertsdóttir.
Í flokknum „Besta umfjöllun ársins 2009“ fékk Lóa Pind Aldísardóttir verðlaunin, en aðrir sem voru
tilnefndir voru þeir Magnús Halldórsson og Ragnar Axelsson ásamt Ágústi Inga Jónssyni annars vegar og Svavar Hávarðsson
hinsvegar.
Í flokknum „Blaðamannaverðlaun ársins 2009“ fékk Jóhann Hauksson verðlaunin, en aðrir sem voru tilnefndir voru
Þóra Arnórsdóttir og svo skopmyndateiknararnir Gunnar Karlsson og Halldór Baldursson.
Dómnefnd á samkvæmt reglugerð verðlaunanna að rökstyðja val sitt á verðlaunahöfum og er rökstuðningnurinn svohljóðandi:
Rannsóknarblaðamennska ársins 2009
Þórður Snær Júlíusson, Viðskiptablaðinu (áður Morgunblaðinu),
fær verðlaunin fyrir upplýsandi fréttir og greinaflokka um aflandsfélög og skattaskjól, einkavæðingu bankanna og umfangsmikil viðskipti
stórfyrirtækja. Fjármál og viðskipti voru helstu fréttamál ársins 2009 á Íslandi og í fjölþættum og
vönduðum skrifum sínum tókst Þórði Snæ aftur og aftur að draga fram í dagsljósið atriði sem skiptu miklu fyrir
umræðuna. Þetta á meðal annars við um fréttir hans af aflandsstarfsemi íslenskra fyrirtækja, skrif hans um endurskipulagningu Exista og starfsemi
Milestone svo dæmi séu tekin. Þórður hefur lagt mikið af mörkum við að greiða úr þeim viðskiptaflækjum sem ofnar voru
á „uppgangsárunum“ en áttu síðar sinn þátt í hruninu. Það er íslenskri blaðamannastétt
mikilvægt að eiga ungt og áhugasamt fólk sem er duglegt að grafa upp heimildir og gefst ekki upp.
Besta umfjöllun ársins 2009
Lóa Pind Aldísardóttir, Stöð 2, fær verðlaunin fyrir vandaðar og aðgengilegar
fréttaskýringar um flókin mál, sem varða almenning miklu svo sem um fjármál heimilanna og aðild Íslands að ESB.
Fréttaskýringar og fréttaflutningur Lóu sýnir hve góð tök hún hefur á miðlinum.Þau nýtir hún til að sinna
hinu mikilvæga hlutverki blaðamannsins, það er að varpa ljósi á flókin fréttamál svo þau verða áhorfandanum
auðskiljanleg. Hún er óhrædd við að fara ótroðnar slóðir í efnistökum og framsetning hennar er myndræn og skýr.
Efnistök hennar eru jafnframt nákvæm, í jafnvægi og sanngjörn, og útkoman verður því blaðamennska sem er til fyrirmyndar.
Blaðamannaverðlaun ársins
Jóhann Hauksson, DV, fær verðlaunin fyrir leiðandi umfjöllun um fall ríkisstjórnarinnar og
þýðingarmiklar fréttaskýringar um mikilvæg þjóðfélagsmál. Jóhann er fagmaður með mikla og víðtæka
reynslu og sambönd. Þessi staðreynd er sérstaklega mikilvæg á umbrotatímum í þjóðfélaginu þegar óvissa og
ringulreið virðist ríkja. Jóhanni hefur tekist í fjölþættum skrifum sínum að útskýra og greina
þjóðfélagsástandið, sýna lesendum undir yfirborðið og tengja saman hulda þræði. Á löngum ferli hefur Jóhann
áunnið sér traust heimildarmanna og virðingu lesenda sem ásamt reynslu hans og þekkingu gera skrif hans um þjóðfélagsmál
ómissandi í samfélagsumræðunni
Fyrir afhendingu verðlaunanna ávarpaði Jóhannes Tómasson viðstadda fyrir hönd dómnefndar og var ávarp hans svohljóðandi:
Góðir hálsar og aðrir gestir.
Hér á eftir verða í sjöunda sinn afhent þrenn verðlaun sem Blaðamannafélag Íslands veitir í jafnmörgum flokkum.
Verðlaunanefndina skipa Birgir Guðmundsson, formaður, sem er fjarri góðu gamni í dag, bæði af því að hann býr á Akureyri en
þó aðallega vegna veikinda, en við hin reynum að standa fyrir máli okkar. Við hin erum: Kristín Þorsteinsdóttir, Lúðvík
Geirsson, Sigríður Árnadóttir og Jóhannes Tómasson.
Til hvers blaðamannaverðlaun? Er eitthvað vit í að verðlauna blaðamenn sem stóðu kannski ekki vaktina í hrunadansinum? Eða dönsuðu svo
dyggilega með að þeir vissu ekkert hvað var að gerast fyrir utan?
Jú, það er ástæða til þess. Fjölmiðlar hafa alltaf hlutverki að gegna og þeir hafa sinnt því. Ég voga mér hins
vegar ekki hér að fara öllu nánar út í að skilgreina hvort þeir stóðu sig eða ekki. Við ætlum frekar að nota
tækifærið í dag og fagna því sem vel er gert og vekja athygli á því ef það mætti verða einhverjum til eftirbreytni.
Það er tilgangur blaðamannaverðlauna.
Eins og fyrri ár bárust nefndinni fjölmargar tilnefningar eða milli 60 og 70. Þær eru bæði frá fjölmiðlunum sjálfum og hinum
almenna lesanda eða neytanda. Þær tengjast margar hverjar umfjöllun um fjármál og margar eru um viðskiptafréttir. Einnig um svo fjölmargt annað
sem ástæða er til að fjalla um og endurspeglar daglegt líf okkar svo sem gleðiefni eða harmleiki og allt þar á milli.
Allt eru þetta umfjöllunarefni sem snerta okkur á einhvern máta. Meðferðin og matreiðslan snerta okkur líka. Og hvað þá hina sem eru til
meðferðar í fjölmiðlum. Þetta krefst vandvirkni blaðamanna og ritstjórna og við höfum reynt að skoða og meta en valið var oft
erfitt.
Góðir gestir.
Við skulum nú snúa okkur að aðalatriðinu og afhenda verðlaun. Við völdum lítinn hóp úr tilnefningunum og síðan aftur enn
minni hóp eða þrjá sem eru fremstir meðal jafninga.
Við byrjum á verðlaunum fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins. Sigríður Árnadóttir kynnir þau.
Þá eru það verðlaun fyrir umfjöllun ársins. Lúðvík Geirsson afhendir.
Að síðustu verða afhent blaðamannaverðlaun ársins. Kristín Þorsteinsdóttir sér um þau.





