Skora á stjórnvöld að breyta prentlögum
Almennt - 20.febrúar 2010

Ályktun stjórnar B.Í. er svohljóðandi:
Stjórn Blaðamannafélags Íslands skorar á stjórnvöld að eyða réttaróvissu vegna úreltra prentlaga. Stjórnin vekur athygli á að Hæstiréttur Íslands hefur nýlega þyngt dóm yfir blaðamanni DV vegna ummæla sem höfð eru eftir viðmælanda í grein blaðsins. Fyrir liggur skýr vilji löggjafans í nýlegu frumvarpi um að samræma prentlög og útvarpslög að þessu leyti og tryggja að viðmælendur beri sinn hluta ábyrgðarinnar. Blaðamannafélagið hefur ásamt útgáfufélagi DV vísað slíku máli til Mannréttindadómstóls Evrópu. Þaðhindrar tjáningarfrelsi og setur vinnubrögð blaðamanna í vandasömum málum í uppnám að hægt sé að gera blaðamennábyrga fyrir ummælum viðmælenda. Á því verður að ráða bót.





