Politiken biðst afsökunar á að hafa móðgað múslima

Danska blaðið Politiken baðst fyrir helgina afsökunar á því að hafa móðgað Múslima með því að hafa á sínum tíma birt í blaðinu skopteikningu af Múhameð spámanni þar sem hann var með vefjarhött í líki sprengju. Þessi skopteikning var ein af teikningunum 12 sem Jótlandspósturinn birti fyrir fjórum árum. Þessi afsökunarbeiðni hefur endurvakið umræðurnar um prentfrelsi og takmörk þess, sem voru mjög heitar eftir að skopteikningarnar voru fyrst birtar. Politíken segir að afsökunarbeiðnin sé hluti af sáttagjörð sem blaðið hafi gert við lögmann frá Saudi Arabíu sem er fulltrúi fyrir átta samtök múslima í Mið-Austurlöndum og Ástralíu.
Afsökunarbeiðnin hefur ekki fallið í góðan jarðveg hjá dönsku pressunni, sem til þessa hefur staðið einhuga að baki birtingu
teikninganna og hafnað öllum hugmyndum um að danskir fjölmiðlar biðjist afsöknar á birtingu þeirra. Lars Loekke Rasmussen,
forsætisráðherrann sjálfur, kvaðst undrandi á þessu útspili Pólitiken og sagði að það vekti ugg að sjá að
skarð væri rofið í samstöðu danskra fjölmiðla í málinu.
Í afsökunarbeiðni Politiken segir að það hafi ekki verið ætlunin að móðga múslima í Danmörku eða annars staðar
þegar blaðið endurbirti skopteikninguna af Múhameð. Töger Seidenfaden, aðalritstjóri segir að í raun sé ekki verið að
biðjast afsökunar á ákvörðuninni um að birta myndina, heldur væri verið að biðjast afsökunar á því að
birtingin hefði virkað móðgandi á Múslima.
Sjá nánar hér





