:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Nýtt tækifæri til endurmenntunar

Háskólinn í Reykjavík, býður nú upp á endurmenntun í faglegri fjölmiðlun í undirstofnun sinni Opna háskólanum. Þetta er fræðilegt og hagnýtt nám sem þátttakendur geta lagt stund á samhliða vinnu. Í tilkynningu frá Opna háskólanum segir að markmið námsins sé að „skerpa á fagþekkingu fjölmiðlafólks, einkum á sviði viðskipta- og lögfræði, auk þess að efla færni í vinnslu og miðlun efnis um ljósvakamiðla.“
Í sérstöku fagráði fyrir þetta nám eru þau Þórhallur Gunnarsson fyrrverandi dagskrárstjóri  RÚV og Kastljóss,  Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, og Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR en um sjálfa kennsluna munu ýmsir sjá.

Í kynningu skólans á náminu segir ennfremur:
„Verðandi og vaxandi fréttamenn fá tækifæri á að nema þá fagkunnáttu, list og siðfræði fréttamennsku með fræðimönnum Háskólans í Reykjavík og reyndu kunnáttufólki úr heimi innlendrar fjölmiðlunar.
Sérstaða námsins liggur í hagnýtu eðli námsins, sterkum tengslum við atvinnulífið og fræðilegum grunni. Námið er í senn fræðilegt og hagnýtt en byggir að miklu leyti á verklegum æfingum þar sem reynir á fagþekkingu þátttakenda í grunnþáttum viðskipta og lögfræði s.s. hagfræði, stjórnsýslu og siðfræði.  Þátttakendur fá einnig undirstöðuþekkingu og færni í fréttavinnslu, samtalsfærni, skriffærni og tæknikunnáttu. Námið á sér ekki hliðstæðu á Íslandi.
Að námi loknu eiga þátttakendur að vera vel í stakk búnir undir sérhvert starf sem tengist atvinnugreininn. Mikil áhersla er lögð á að þátttakendur geti nýtt þá þekkingu sem þeir afla sér á beinan hátt í núverandi eða framtíðarstarfi. Einnig er mikil áhersla á að nemendur geti lært hver af öðrum og miðlað reynslu sinni.“ 
Sjá einnig hér

 

 



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning