:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

NowPublic hyggst borga áhugablaðamönnum

Vefsetrið „NowPublic“, sem er einn þekktasti vettvangur borgaralegrar blaðamennsku á Vesturlöndum, hefur nú tilkynnt um að það stefni að því að ráða til sín um 1000 borgaralega blaðamenn á þessu ári, þ.e. áhugafólk um að skrifa fréttir og fjölmiðlaefni sem nú fengi greitt fyrir framlag sitt á vefinn.  Búist er við að fyrir lok næsta mánaðar verði um 100 borgaralegi blaðamenn búnir að skrá sig hjá „Now Public“ en þessi tilraun hjá stjórnendum síðunnar tengist átaki hennar sem kennt hefur verið við sérvalið efni. Þar er hugmyndin að hafa fréttaefni sem kemur – eins og raunar mest efni á síðunni – frá áhugafólki víðs vegar að og auk þess að ákveðin ritstýring á vegum síðunnar fari fram í þessum hluta. Þannig yrði búinn til vettvangur inni á síðunni þar sem gæði efnis og marktækni yrði margfalt meiri en hún er í dag. 

Þessi aðgerð er hugsuð sem liður í grundvallarbreytingu á fjármögnun, þar sem hætt verður að rukka fyrir aðgang að efni en þess í stað farið að byggja á auglýsingatekjum. Greiðsur til áhugablaðamannanna, hinna borgaralegu blaðamanna, yrði þá ákveðið hlutfall af auglýsingatekjum og það hlutfall yrði vandlega reiknað út frá lestri á tilteknum efnisatriðum sem sett eru inn. Þannig gæti borgaralegur blaðamaður sem mikið er lesinn fengið talsverðar tekjur af skrifum sínum.
Inn á síðuna koma í dag meira en 5 milljón heimsóknir á dag og vonast forsvarsmenn fyrirtækisins til að heimsóknum muni stórfjölga með þessum breytingum, bæði vegna auðveldara og ókeypis aðgengis og eins vegna aukinna gæða á efni.



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning