NJF lýsir áhyggjum af fréttaþróun í Færeyjum
Norræna blaðamannasambandið (NJF) lýsir miklum áhyggjum af þróun mála hjá Ríkisútvarpinu í Færeyjum, en
fréttastjórinn hefur verið látinn fara og stórlega hefur verið dregið úr áherslu á fréttir í nýrri stefnumörkun
yfirstjórnar stofnunarinnar.
Norræna blaðamannasambandið (NJF), með aðildarfélög í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, sem alls hafa innan
sinna vébanda um 60 þúsund blaðamenn, lýsir yfir fullum stuðningi við grundvallarbaráttu Félags fjölmiðlafólks í
Færeyjum gegn því að dregið sé úr óháðri fréttamennsku á stærsta vinnustað blaðamanna í landinu.
Þetta er mjög mikilvæg barátta og snertir möguleika og þróun óháðrar gæðablaðamennsku í landinu öllu, og
sérstaklega þó á vettvangi almannaútvarps. NJF skorar því á stjórnendur Ríkisútvarps Færjeyja að taka
þegar upp viðræður við Samtök fjölmiðlafólks og önnur fagsamtök sem tengjast málinu með það að leiðarljósi
að leysa fréttastjóramálið og endurskoða hina alvarlegu stefnu sem málefni frétta hjá stofnuninni eru að taka.
Arto Nieminen, forseti NJF Juha Rekola, aðalritari NJF





