:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Netið fer framúr prentmiðlum í auglýsingum

Útgjöld til auglýsinga og markaðseetningar á netinu í Bandaríkjunum munu í fyrsta sinn í ár verða meiri en útgjöld til auglýsinga í prentmiðlum. Þetta er meginniðurstaðan í nýrri spá  rannsóknarfyrirtækisins Outsell um auglýsingakostnað í fjölmiðlum. Í september í fyrra kom fram að Bretland væri fyrsta hagkerfið þar sem meiru væri eytt í auglýsingar á netinu en í prentmiðlum, en nú er þetta semsé talið munu verða í Bandaríkjunum líka. Samkvæmt spánni er þó talið að forskot netsins verði mjög lítið og prentmiðlar munu ekki tapa tekjum, heldur munu netmiðlar einfaldlega fá meira út úr fyrirsjáanlegri aukningu. Talið er að útgöld til auglýsinga muni aukast heldur vestan hafs á árinu og er það haft til marks um að botni fjármálakreppunnar sé náð.  
Sjá einnig hér



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning