:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Minnkandi traust til fjölmiðla

Traust almennings á Íslandi til fjölmiðla hefur minnkað um 8 prósentustig frá því í desember síðastliðinn. Í nýrri könnun MMR (Markaðs-og miðlarannsókna) kemur í ljós að aðeins 15% landsmanna bera mikið traust til fjölmiðla, en 23% svarenda báru mikið traust til fjölmiðla í desember 2008. Um er að ræða sambland af net- og símakönnun sem gerð var 7-14. maí og byggja niðurstöðurnar á svörum 845 manns á aldrinum  18-67 ára.

 Sem fyrr er það Fréttastofa Ríkisútvarpsins sem kemur best út úr þessari könnum og nýtur mests trausts meðal almennings. Um 70% aðspurðra segjast bera mikið traust til fréttastofu RÚV, og er það nærri tvöfalt fleiri en segjast bera mikið traust til fréttastofu Stöðvar 2.

Morgunblaðið nýtur mests trausts dagblaða. Rösklega 50% segjast bera mikið traust til blaðsins, sem eru 17,4 prósentustigum fleiri en segjast bera mikið traust til Fréttablaðsins.   Mbl.is nýtur mests trausts netmiðla.  Ríflega 54% segjast bera mikið traust til hans sem er um tvöfalt fleiri en þeir sem segjast bera mikið traust til visis.is.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning