Hagnýtar upplýsingar vegna atvinnumissis

Í starfslok að uppsagnarfrestinum loknum ber að gera upp áunnin réttindi, svo sem orlof, þriggja mánaða
leyfi og júlí- og desemberuppbót. Þessar greiðslur hafa ekki áhrif á atvinnuleysisbætur.
Sá sem sagt er upp á rétt á að fara beint inn á atvinnuleysisbætur að loknum
uppsagnarfresti. Segi blaðamaður upp sjálfur eða geri samning um starfslok er átta vikna biðtímabil að loknum uppsagnarfresti
áður en réttur skapast á atvinnuleysisbótum. Í samningi um starfslok þarf þannig að koma skýrt fram að
viðkomandi sé sagt upp.
Að loknum uppsagnarfresti sér Vinnumálastofnun um afgreiðslu atvinnuleysisbóta.
Mikilvægt er að geta sýnt fram á virka atvinnuleit í uppsagnarfresti komi til atvinnuleysisskráningar að honum loknum. Ef atvinnuleit ber ekki árangur sækið um atvinnuleysisbætur áður en uppsagnarfrestur rennur út eða á fyrsta virka degi í atvinnuleysi.
Afgreiðsla Vinnumálastofnunar er að Engjateig 11. Hægt er að sækja um á netinu á http://www.vinnumalastofnun.is/, en þar einnig að finna frekari upplýsingar og gögn.
Atvinnuleysisbætur nema 6.277 kr. á dag miðað við 100% starfshlutfall ( + 251 kr. á dag fyrir hvert barn undir 18 ára aldri) fyrstu 10 dagana og síðan í 65 daga eða þrjá næstu mánuði 70% af launum en þó aldrei hærri upphæð kr. 242.636á mán.og er miðað við sex mánaða tímabil sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus. Eftir það eru atvinnuleysisbætur149.523 kr. á mánuði (+ 5.439 kr. pr barn yngra en 18) og getur réttur til atvinnuleysisbóta varað í allt að þrjú ár. Greiðslutímabil atvinnuleysisbóta er frá 20. til 19. næsta mánaðar og er greitt út 1. virka dag mánaðar. Atvinnuleysisbætur eru greiddar fyrir alla daga nema laugardaga og sunnudaga.
Athugið að sjá til þess að félagsgjöldum sé skilað af atvinnuleysisbótunum til BÍ til þess að tryggja réttindi ykkar í félaginu. Það þarf að óska eftir því á umsókn.
Athugið að Endurmenntunar- og háskólasjóður BÍ styrkir nám og námskeið með margvíslegum hætti og Styrktarsjóður endurgreiðir margvíslegan kostnað vegna lækninga og heilsufars. Sjá nánar starfsreglur Styrktarsjóðs á press.is 31. okt. 2008
Hjálmar Jónsson
hjalmar@press.is





