Hæstiréttur dæmir DV fólk

Enn hefur Hæstiréttur fellt dóm í meiðyrðamáli þar sem tjáningarfrelsissjónarmið eru talin vega minna en
persónu- og æruvernd. Í gær sneri rétturinn við dómi undirréttar í máli Rúnars Þórs Róbertssonar gegn
fyrrum ritstjóra DV Sigurjóni M. Egilssyni og Erlu Hlynsdóttur, blaðamanni á DV og dæmdi þau til að greiða Rúnari 150.000 kr.
miskabætur.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður sýknað blaðamennina og taldi umfjöllun blaðsins ekki móðgandi eða meiðandi fyrir
manninn.
Málavextir voru þeir að Rúnar Þór Róbertsson krafðist ómerkingar ummæla sem birtust í DV sumarið 2007 en þar var
sagt að hann væri í innflutningi á kókaíni til söludreifingar. Erla Hlynsdóttir skrifaði greinina og var auðkennd sem höfundur, en
Sigurjón M. Egilsson var á þessum tíma ritstjóri blaðsins.
Rúnar var síðan sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins í héraðsdómi einni viku eftir að ummælin birtust í
DV og var sá dómur staðfestur í Hæstarétti. Í kjölfarið höfðaði Rúnar meiðyrðamál gegn Erlu og
Sigurjóni og krafðist samtals 3 milljóna króna í bætur. Í dómi Hæstaréttar segir: „ Með þeim málalokum
var því þannig hafnað að áfrýjandi og meðákærði hafi í þessu tilviki orðið sannir að sök um að vera
„kókaínsmyglarar“ og jafnframt að áfrýjandi hafi í febrúar 2007 tekið fyrrnefnda bifreið í sínar vörslur
„í þeirri trú að kókaínið væri á sínum stað“, en þetta tvennt var fullyrt í þeim ummælum, sem
áfrýjandi leitar hér ómerkingar á, án nokkurs efnislegs fyrirvara um að þær staðhæfingar væru reistar á
ákæru, sem varist væri fyrir dómi. Að virtum málalokum um þá ákæru fólu þessi ummæli í sér
aðdróttun í garð áfrýjanda og eru ekki efni til annars en að verða við kröfu hans um ómerkingu þeirra.“
Sjá dóminn í heild hér





