Félag fjölmiðlakvenna, FFK, hélt opinn fund um stöðu fjölmiðlakvenna í kreppu í gærkvöldi, 3. febrúar.
Metþátttaka var á fundinum en á hann mættu hátt í 100 fjölmiðlakonur. Á fundinum var samþykkt ályktun sem hefst
svona: "Fjölmennum fundi Félags fjölmiðlakvenna, sem haldinn var í Reykjavík 3. febrúar 2010, ofbýður ástandið á
ritstjórnum fjölmiðla landsins. Hlutur kvenna hefur ávallt verið rýr innan fjölmiðla. Uppsagnir hafa orðið til þess að konur eru ekki eins
sýnilegar á fjölmiðlum og áður og þróunin er uggvænleg. Engar konur eru meðal æðstu stjórnenda stærstu
fréttamiðla landsins og í hópi næstráðenda er hlutur kvenna aðeins um þriðjungur. Konum hefur einnig snarfækkað í hópi
almennra blaða- og fréttamanna og þáttastjórnenda og var hlutfallið ekki gott fyrir. Einsleitur hópur karla er ráðandi í
ákvörðunum um efnistök sem er ekki síst alvarlegt í ljósi þess að nú á sér stað endurmótun íslensks
samfélags."
Síðan segir í ályktuninni: "Félag fjölmiðlakvenna harmar uppsagnir kvenna sem hafa gagnrýnt yfirmenn og eigendur fjölmiðla og krefst þess að hneykslanlegar uppsagnir á reyndum fjölmiðlakonum síðustu misserin verði leiðréttar og þær ráðnar aftur til starfa. Um leið styður félagið heils hugar við bakið á þeim konum sem eftir eru á ritstjórnum fjölmiðla og hvetur þær til góðra verka.
Fundurinn skorar á stjórnvöld og yfirmenn fjölmiðla að gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að rétta hlut kvenna á fjölmiðlum landsins."