:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Samfélags- og netmiðlar settu mark á kosningarnar

Netmiðlar og samfélagsvefir betrumbættu kosningaumfjöllunina fyrir þingkosningarnar í Bretlandi  á dögunum þrátt fyrir að nýmælið með sjónvarpseinvígi leiðtoganna hafi vissulega sett mestan svip á umræðuna.  Þetta er niðurstaða úr nýrri könnun á kosningunum. Könnunin,  sem ber hina löngu yfirskrift: „Kosningarnar 2010: hefðbundnir fjölmiðlar og áhrif internetsins, - hvernig samfélags- og netmiðlar höfðu áhrif á stjórnmál og blaðamennsku", byggir á viðtalsrannsókn við rúmlega 20 manns, þar á meðal áhrifamikla  blaðamenn, bloggara, stjórnmálamenn og stofnendur stjórnmálasíðna á netinu.

Niðurstöðurnar sýna að Twitter virðist vera mikilvægt samskiptatæki í stjórnmála- og fjölmiðlasamfélaginu og þar sem meira en 600 frambjóðendur notuðu þetta samskiptatæki reglulega varð þetta að mikilvægri rauntíma upplýsingaleið fyrir bæði stjórnmálamenn og blaðamenn. Í tengslum við rannsóknina vann Blaðamennskustofnun Reuters könnun sem náði til 200 ungmenna á aldrinum  18-24 ára og í þeim hópi virðist sem óvenju mikla þátttöku í kosningunum mega rekja til aukinna áhrifa samfélagsmiðla á netinu.  Svo virðist raunar sem þátttaka starfsmanna og þá sérstaklega blaða- og fréttamanna sem starfa á hefðbundu miðlunum í alls kyns nýmiðlun s.s. bloggi, Facebook og Twitter, hafi síðan enn aukið á áhrif þessara miðla á heildarumfjöllun um kosningarnar, að þvi er segir í könnuninni.

Þessar niðurstöur vekja athygli en samkvæmt nýrri könnun hér á landi vegna sveitarstjórnakosninganna
þá er Facebook mikilvægur þáttur í kosningaumfölluninni en Twitter skiptir litlu máli. Sbr. umfjöllun á press.is

Sjá einnig hér



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning