Endurnýjun ljósmyndunar á krepputímum

Blaðaljósmyndarafélag Íslands stendur fyrir fyrirlestrum í Ljósmyndasafni Reykjavíkur næstkomandi laugardag 8. janúar klukkan
13:30.
Max Houghton ritstjóri Foto8 tímaritsins í London verður hér á landi um næstkomandi helgi vegna forvals í árlega keppni
Blaðaljósmyndarafélags Íslands, “Myndir Ársins”. Hún mun af því tilefni halda fyrirlestur í húsakynnum
Ljósmyndasafns Reykjavíkur á laugardaginn klukkan 13.30. Fyrirlesturinn er á ensku og ber titilinn “Hard Times – Photography and Renewal”
(Endurnýjun ljósmyndunar á krepputímum) og fjallar um breytingar á fréttaljósmyndun í Bandaríkjunum í kringum síðustu
heimskreppu.
Á eftir fyrirlestri Max munu Brynjar Gunnarsson (Billi) og Árni Torfason ljósmyndarar fjalla um myndasögur og muninn á þeim og myndaseríum.
Fjallað verður um hvernig blöð og tímarit geta nýtt sér myndasögur á sínum síðum. Einnig verður fjallað um hvernig best er
byggja upp myndasögur og hvaða viðfangsefni henta best.
Fyrirlestrarnir eru opnir öllum og er ókeypis inn. Starfsmenn á ritstjórn blaða eru sérstaklega hvattir til að mæta og kynnast nýjum hugmyndum um
notkun ljósmynda í fréttamennsku.
Max Houghton er ritstjóri Foto8 tímaritsins í London (http://www.foto8.com/) sem sérhæfir sig í
fréttaljósmyndun og birtingu á myndasögum. Max er einnig deildarstjóri yfir Photojournalism við University of Westminster.
Brynjar Gunnarsson (Billi) hefur verið starfandi fréttaljósmyndari í 11 ár bæði á dagblöðum og sjálfstætt starfandi. Hann
hefur unnið fyrir fjölda blaða hér á landi og erlendis, meðal annars: The Guardian og Observer í Englandi, National Geographic í Póllandi, AP og
Fréttablaðið. Brynjar er með MA gráðu í fréttaljósmyndun.
Árni Torfason er sjálfstætt starfandi ljósmyndari. Hann hefur unnið til fjölda viðurkenninga á sýningum
Blaðaljósmyndarafélags íslands. Meðal annars hefur hann fengið verðlaun í flokkunum „Mynd ársins“,
„Íþróttamynd ársins“ og „Landslagsmynd ársins“. Árni hefur meðal annars unnið fyrir AP, Getty, The Guardian og
Morgunblaðið.





