BÍ lýsir áhyggjum af samskiptum við Almannavarnir
Stjórn Blaðamannafélagsins hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er áhyggjum af samskiptum Almannavarna ríkisins við blaðamenn og ljósmyndara vegna gossins á Fimmvörðuhálsi. Í ályktuninni segir að langur tími hafi liðið "þar til ljósmyndarar fengu að fara nálægt gosinu en á meðan gengu myndir sem björgunarsveitarmenn tóku á vettvangi kaupum og sölum. Þegar stórviðburðir verða eða náttúruhamfarir þarf fréttafólk að koma upplýsingum til almennings og til þess þarf góða samvinnu við þá sem starfa að almannavörnum."
Ályktun BÍ. er svohljóðandi:
Ályktun frá Blaðamannafélagi Íslands
Stjórn Blaðamannafélags Íslands lýsir yfir áhyggjum af
samskiptaerfiðleikum Almannavarna ríkisins við fréttamenn og ljósmyndara sem fluttu fréttir af eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Langur
tími leið þar til ljósmyndarar fengu að fara nálægt gosinu en á meðan gengu myndir sem björgunarsveitarmenn tóku á vettvangi
kaupum og sölum. Þegar stórviðburðir verða eða náttúruhamfarir þarf fréttafólk að koma upplýsingum til almennings og til
þess þarf góða samvinnu við þá sem starfa að almannavörnum. Það verður líka að hafa í huga að ljósmyndir og
myndskeið af vettvangi eru hluti af Íslandssögunni og miklu máli skiptir að reyndir fréttaljósmyndarar fái tækifæri til að sinna
þeirri skyldu sinni að mynda slíka viðburði svo að útkoman sé eins og best verður á kosið. Blaðamannafélagið telur
brýnt að Almannavarnir endurskoði afstöðu sína til starfa fréttamanna og ljósmyndara á vettvangi. Margir þeirra hafa áratugareynslu
í faginu, hafa myndað bæði eldgos og aðrar náttúruhamfarir og það er ekki ástæða til þess að tortryggja aðkomu
þeirra á neinn hátt. Gera ætti ráð fyrir því að Fréttaljósmyndarar og kvikmyndatökumenn fari með í allar ferðir
sem jarðvísindamenn og björgunarsveitir fara í ef mögulegt er að koma því við. Þetta fólk hefur oftar en ekki sótt
dýrmæt gögn í hendur fréttamanna eftir hamfarir. Síðast en ekki síst kemur það í veg fyrir að menn reyni að fara upp
á eigin spýtur og stofni sér þannig í hættu.
Fyrir hönd stjórnar B.Í,
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir





