:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Bandarísk blöð í klípu

Bandaríska Verslunarráðið veltir því nú fyrir sér hvernig hægt sé að endurlífga  í blaðamennskuna. Meðal þess sem það telur koma til greina til að aðstoða illa leikinn fjölmiðlageirann í Bandaríkjunum er að niðurgreiða starfsemina, góðgerðarfjármögnun og það að styrkja vernd höfundarréttarm, en þetta eru leiðir sem komið er inn á í skýrslu um stöðuna á fjölmiðlamarkaði sem verslunarráðið er með til umræðu í dag, þriðjudag.  En áður en áhrifamenn fara út í það að útfæra einhverjar af þessum leiðum sem talað er um í skýrslunni, kynni að vera áhugavert fyrir þá að kynna sér innihald annarrar skýrslu, þessarar frá OECD.

Þar er skoðuð staðan á fjölmiðlamarkaði í 31 OECD landi  og þær inngripsaðgerðir sem eru í gangi gagnvart fjölmiðlunum, einkum hvað varðar fréttafjölmiðla.  Mjög áberandi er munurinn á rekstri dagblaðanna í  Bandaríkjunum annars vegar og í Evrópu hins vegar og gengur reksturinn í Bandaríkjunum áberandi verr. 
Á árabilinu frá 2007-2009 féllu tekjur bandarískra dagblaða um 30%,  en næst mesti samdrátturinn á dagblaðamarkaði var í Bretlandi eða um 21%. Mun minni samdráttur var í öðrum löndum, s.s.  í Þýskalandi þar sem samdrátturinn var 10%, Suður Kóreu þar sem samdrátturinn var 6%, Ástralía og Frakkland þar sem aðeins var 3% samdráttur og Austurríki þar sem tekjur dagblaða minnkuðu um 2% á þessu tímabili. Þess ber þó að geta að í sumum þessara landa hafði samdrátturinn að einhverju leyti  þegar átt sér stað þannig að strax árið 2007 hafði talsverður samdráttur þegar orðið.
Engu að síður  er fleira sem styður þá tilhneigingu sem þessi samanburður sýnir. Þannig lásu innan við helmingur fullorðinna Bandaríkjamanna dagblað reglulega árið 2008 á meðan mun fleiri gerðu það annars staðar, t.d. um 96% á Íslandi. Þá kemur einnig fram að bandarísk dagblöð eru mun háðari auglýsingum í tekjuöflun sinni en evrópsk blöð sem hafa tryggari áskriftartekjur.  Árið  2008 kom  87% af tekjum bandarískra blaða frá auglýsingum á meðan sambærilegt hlutfall var 53% í Þýskalandi,  50% í Bretlandi og 35% í Japan.
Sjá einnig hér

 



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning