:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

B.Í. harmar fjöldauppsagnir

Stjórn Blaðamannafélags Íslands kom saman til fundar í kvöld til að ræða viðburði dagsins hjá Morgunblaðinu. Í ályktun sem stjórnin sendi frá sér eftir fundinnn eru fjöldauppsagnir á blaðinu harmaðar og bent á að verið sé að segja upp blaðamönnum með áratugareynslu í nafni hagræðingar en á sama tíma sé ritstjórum fjölgað úr einum í tvo.  Þá lýsir stjórn B.Í. yfiri þungum áhyggjum af stöðu fjölmiðla í landinu enda hafi hundruð blaðamanna misst vinnuna á síðustu vikum og mánuðum.

Ályktun stjórnar B.Í. er annars svohljóðandi:
Reykjavík 24. september 2009.
Ályktun stjórnar Blaðamannafélags Íslands
Blaðamannafélag Íslands harmar fjöldauppsagnir á Morgunblaðinu. Þeir sem lengst hafa unnið hjá blaðinu og sagt var upp störfum í dag hafa verið þar í um fjörutíu ár. Á sama tíma og ritstjórum blaðsins er fjölgað í tvo er gífurlegri reynslu og þekkingu nærri tuttugu blaðamanna kastað á glæ í nafni hagræðingar.
Blaðamannafélagið telur þá ákvörðun eigenda blaðsins að ráða umdeildan stjórnmálamann sem ritstjóra Morgunblaðsins rýra trúverðugleika blaðsins. Afskipti Davíðs Oddssonar af stjórnmálum og störf hans sem Seðlabankastjóri tengja hann efnahagshruninu síðasta haust með slíkum hætti að blaðamenn geta ekki við unað. Blaðamannafélagið óttast um starfsöryggi og starfsskilyrði þeirra félagsmanna sem enn starfa hjá blaðinu.
Blaðamannafélagið lýsir jafnframt þungum áhyggjum af stöðu fjölmiðla á Íslandi, enda hefur um hundrað blaðamönnum verið sagt upp störfum síðustu misseri. Þá hefur harkalegur niðurskurður á ritstjórnum þrengt mjög að faglegri og frjálsri blaðamennsku. Þetta er sérstaklega hættulegt nú þegar aldrei hefur riðið jafn mikið á og nú að standa vörð um lýðræði hér á landi.
Stjórn Blaðamannafélags Íslands

 

 

 



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning