:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Athyglisverð tilraun um samsfélagsvefi

Athyglisverð tilraun er að fara í gang í Frakklandi  þar sem kannað er hversu raunverulegur heimur samsiptavefjanna er (social media)  og hvers konar upplýsingastreymi fer þar fram í raun og veru. Verkefnið heitir "Bak við luktar dyr á vefnum" ("Huis clos sur le net").  Fimm blaðamenn, frá Frakklandi, Belgíu og Sviss, munu láta loka sig inni í húsi í Suður-Frakklandi og þeir munu skrifa þaðan fréttir og frásagnir byggðar á upplýsingum sem þeir fá, en einu samskipti þeirra við umheiminn verða í gegnum samfélagsvefi s.s. Facebook, Twitter  eða sambærilega vefi og hlekki sem tengjast þeim. Tilgangur tilraunarinnar er að sögn umsjónarmanns hennar sá, að kanna hvort almenningur eigi þess raunverulega kost að halda sér upplýstum um það sem er að gerast með svipuðum hætti og hægt er að gera með hefðbundnum fjölmiðlum.
Sjá einnig hér



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning