Arnold mætir ofurefli
Aðsent - 27.febrúar 2004
Hér á efetir birtist ádrepa Ólafs Teits Guðnasonar blaðamanns, sem birtist í Viðskiptablaðinu í dag.
Arnold mætir ofurefli
Eftir Ólaf Teit Guðnason
Skoðanir fréttamanna móta fréttirnar. Þetta er staðreynd, hvort sem fólki líkar það betur eða verr.
Það er ósköp eðlilegt að fjölmiðlar láti af og til finna fyrir sér og leggist á árarnar í einhverju tilteknu máli -- á þann hátt að afstaða þeirra fari ekki á milli mála. tundum leggjast fréttamenn hins vegar í skæruhernað. Þá þykjast þeir vera hlutlausir en gefa kolranga mynd af veruleikanum; búa til sýndarveruleika sem samræmist skoðunum þeirra eða fordómum.
***
Um árabil hefur hjónaband samkynhneigðra verið bannað með lögum í Kaliforníu rétt eins og víðast hvar í Bandaríkjunum. Í nokkrum ríkjum eru slík hjónabönd hins vegar ekki bönnuð berum orðum. Lengi vel var ekkert í lögum Kaliforníu sem hindraði að samkynhneigðir, sem gengju löglega í hjónaband einhvers staðar annars staðar, nytu þar réttinda sem hjón. Til að breyta þessu var "Tillaga 22" borin undir kjósendur í almennri atkvæðagreiðslu í ríkinu í mars árið 2000. amkvæmt henni yrði hjónaband því aðeins viðurkennt í Kaliforníu að það væri á milli "eins karls og einnar konu" eins og það er orðað.
Vilji Kaliforníubúa reyndist skýr. Tillagan var samþykkt með 61,4% atkvæða gegn 38,6%. Hún hafði meirihluta í 52 sýslum ríkisins af 58, víðast hvar afgerandi. an Francisco var eina sýslan í gervöllu ríkinu þar sem fleiri en tveir af hverjum þremur voru á móti. Tillagan varð því að lögum.
***
Á dögunum fékk hins vegar borgarstjórinn í an Francisco skyndilega þá flugu í höfuðið að leyfa samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Allt í einu byrjaði hann að fjöldaframleiða hjónavígsluleyfi handa samkynhneigðum, þvert á lög ríkisins. Hann réttlætti þetta með því að lögin stæðust ekki stjórnarskrá Kaliforníu.
Samkynhneigðir létu ekki á sér standa og á rétt rúmri viku höfðu embættismenn borgarinnar gefið út meira en 3.000 vígsluleyfi.
***
Ríkisstjórinn, repúblikaninn Arnold chwarzenegger, greip loksins í taumana um síðustu helgi. Hann lét að vísu ekki handtaka borgarstjórann heldur fór rólega í sakirnar og gaf saksóknara ríkisins fyrirmæli um að fá sem allra fyrst úr því skorið fyrir dómstólum hvort lögbrotin fengju staðist.
Í bréfi sínu til saksóknarans lagði Arnold áherslu á að samfélagið væri grundvallað á virðingu fyrir lögunum: "Þar sem aðgerðir borgaryfirvalda ganga þvert gegn lögum ríkisins og fela í sér bráða ógn við allsherjarreglu (civil order) fel ég þér að grípa þegar í stað til ráðstafana til að fá úr þessum ágreiningi skorið fyrir dómstólum." Á opnum fundi sagði Arnold: "Á meðan við bíðum eftir niðurstöðu dómstóla er tímabært fyrir borgaryfirvöld í an Francisco að snúa af þeirri hættulegu braut að hunsa lögin."
***
Hvernig skyldi nú hafa verið sagt frá þessu í fjölmiðlum uppi á Íslandi? Jú, staðreyndir málsins voru nær undantekningarlaust gróflega skrumskældar og hreinar lygar kokkaðar upp án þess að hægt væri að greina minnstu viðleitni til að segja satt og rétt frá.
***
Á fréttavef RÚV var málið kynnt með fyrirsögninni: "Schwarzenegger reynir að banna hjónabönd samkynhneigðra." Þetta er alrangt. Hann gerði enga tilraun til þess enda væri það út í hött þar sem hjónaband samkynhneigðra er bannað með lögum í Kaliforníu. Það kom náttúrlega ekki fram í fréttinni.
Í fréttum Útvarpsins sagði að Arnold hefði fyrirskipað borgaryfirvöldum að hætta að gefa saman samkynhneigða. Aftur rangt. Hann gaf enga fyrirskipun um það heldur hvatti þau aðeins til að virða lög og reglu. Hann skipaði hins vegar saksóknara að leita til dómstóla með ágreininginn.
Útvarpið sagði að Arnold teldi "giftingarnar ógn við borgaralega reglu". Enn og aftur rangt. Það sem hann taldi grafa undan réttarríkinu voru lögbrot borgarstjórans en ekki sjálfar giftingarnar. Útvarpið minntist ekki einu orði á að hjónavígslurnar væru lögbrot.
Lögbrjóturinn, borgarstjórinn, fékk fína meðferð hjá Útvarpinu; hann teldi "misréttið sem samkynhneigðir verði fyrir stríða gegn lögum ríkisins." Þetta er hálfsannleikur og afar villandi. Ekki einu sinni borgarstjórinn hefur reynt, eins og íslenskir fjölmiðlar, að draga dul á að lög ríkisins banna svo sannarlega hjónabönd samkynhneigðra. Hann telur hins vegar að lögin stríði gegn stjórnarskrá ríkisins. Þótt stjórnarskráin sé vissulega hluti af löggjöfinni er alltaf tekið fram ef sérstaklega er vísað til hennar um lögfræðileg álitamál -- nema í þessari merkilegu frétt Útvarpsins.
***
Sjónvarpið apaði fréttina nánast orðrétta upp eftir Útvarpinu og þar með alla vitleysuna.
***
Stöð 2 stóð sig ögn skár og lét þess getið, að Arnold "héldi því fram" að athæfi borgarstjórans væri í andstöðu við lög ríkisins. Það kom hins vegar ekki fram að það er rétt hjá honum.
***
Í frétt orgunblaðsins um lögbrot borgarstjórans á fimmtudag í síðustu viku kom hvergi fram að hann væri að brjóta lögin. Hins vegar var skýrt tekið fram að Arnold chwarzenegger og George Bush hefðu lýst sig andvíga hjónaböndum samkynhneigðra. Talið væri líklegt að málið yrði áberandi í kosningabaráttunni. em er dálítið skrýtið, því að þótt ogginn segði ekki frá því hefur demókratinn John Kerry, líklegasti andstæðingur Bush í nóvember, ítrekað lýst sig andvígan hjónaböndum samkynheigðra! orgunblaðið gat því ekki upplýst um hvað yrði eiginlega deilt og var auðvitað vorkunn, því að enginn ágreiningur var uppi! (Nokkrum dögum síðar kom að vísu í ljós að frambjóðendur greinir á um hvort málið eigi að vera á forræði alríkisins eða hvers ríkis um sig. Þeir eru hins vegar sammála um kjarna málsins: að hjónaband skuli vera á milli karls og konu.)
Á fréttavef orgunblaðsins var svo þessi fyrirsögn um helgina: "Schwarzenegger fyrirskipar bann við giftingum samkynhneigðra." Rangt. Hann fyrirskipaði ekkert bann enda er bannið þegar í gildi í lögum Kaliforníu, en það kom náttúrlega ekki fram í fréttinni.
Fréttavefurinn sagði að Arnold teldi "hjónabönd samkynhneigðra stefna borgaralegri reglu í ríkinu í bráða hættu." Rangt. Ógnin sem hann varaði við voru lögbrot borgarstjórans, ekki hjónaböndin sem slík.
Þá sagði að Arnold hefði skipað saksóknaranum að "grípa til ráðstafana svo hægt yrði að stöðva hjónavígslur samkynhneigðra í an Francisco með lögum." Rangt. Þær eru bannaðar með lögum.
***
Trekk í trekk fullyrtu fjölmiðlar sem sagt að chwarzenegger vildi setja ný lög til að banna hjónaband samkynhneigðra, enda væru slík hjónabönd ógn við allsherjarreglu. Það var ekki fyrr en á mánudag að Fréttablaðið sagði fyrst íslenskra fjölmiðla frá því að hjónabönd samkynhneigðra eru bönnuð með lögum í Kaliforníu. Fram að því hafði enginn minnst á þetta grundvallaratriði í málinu. Það er auðvitað hreint með ólíkindum.
***
Sýndarveruleikinn sem hinir fjölmiðlarnir komu rækilega á framfæri var þessi: Arnold chwarzenegger er á móti samkynhneigðum. Hann er svo mikið á móti þeim að hann telur að það eitt að leyfa þeim að ganga í hjónaband stefni "borgaralegri reglu" í bráða hættu! Eins og þeir færu þá samstundis rænandi og ruplandi um göturnar! Hann er náttúrlega klikk.
Það getur ekki verið tilviljun að hver fréttamaðurinn á fætur öðrum hélt þessu blákalt fram. Líklegasta skýringin er sú, að þeir séu heilaþvegnir af eigin sýndarveruleika, sem er stuttu máli svona: Þessir repúblikanar eru eitthvað klikk.
Rétt er að taka fram að mér tókst ekki að finna eina einustu erlendu frétt þar sem ekki var minnst orði á að hjónabönd samkynhneigðra eru bönnuð með lögum í Kaliforníu. Íslenskir fréttamenn virðast því hafa sett heimsmet í að forðast kjarna málsins. Og þeir passa vandlega upp á að taka ekki fram að Arnold chwarzenegger er í hópi frjálslyndustu repúblikana; hann er fylgjandi fóstureyðingum, hertum reglum um byssueign og því að samkynhneigðir fái notið tiltekinna réttinda með staðfestri samvist, sem þeim stendur nánast hvergi til boða í Bandaríkjunum.
***
Snúum nú dæminu við til gamans og hugsum okkur eftirfarandi: Lög í Kaliforníu kveða á um bann við því að selja almenningi hríðskotabyssur. Borgarstjórinn í Gun achino, repúblikaninn Arnold chwarzenegger, er hins vegar á því að þessi lög stangist á við ákvæði stjórnarskrár Bandaríkjanna um rétt manna til að bera vopn. Hann tekur því upp á því einn daginn að senda öllum byssusölum í Kaliforníu sérstakt leyfi til að selja hríðskotabyssur.
Hvernig ætli fjölmiðlar myndu taka á málinu? Ætli þeir myndu til dæmis passa alveg sérstaklega upp á að það kæmi HVERGI fram í fréttum þeirra að þetta athæfi Útrýmandans stangaðist á við lög?
***
Borgarstjórinn var kallaður "alþýðuhetja" í ilfri Egils á sunnudaginn var. Látum vera að alþýðan í Kaliforníu -- eins og alþýðan í gervöllum Bandaríkjunum -- er andvíg hjónabandi samkynhneigðra. Hitt er merkilegt ef frjálslyndið snýst upp í aðdáun á stjórnleysi og lögbrotum æðstu embættismanna, og það ekki bara einu sinni eða tvisvar heldur 3.000 sinnum. Af fréttum að dæma finnst mörgum fréttamönnum þetta aðdáunarvert. Það felst óneitanlega ákveðið samræmi í því hjá þeim að yfirvöld megi hunsa lögin þegar þeim sýnist rétt eins og þeir sjálfir megi hunsa staðreyndir þegar skoðanir þeirra og fordómar bjóða þeim.
***
Prestar og sýslumenn á Íslandi hljóta að taka þessa aðdáun til sín; hjónaband samkynhneigðra er sem kunnugt bannað samkvæmt íslenskum lögum, þótt staðfest samvist veiti margvísleg réttindi. Það yrði óneitanlega fjör ef einhver sýslumaðurinn tæki upp á því að gifta samkynhneigða í gríð og erg í trássi við lög.
Að lokum: Ég skora á embætti Ríkisskattstjóra að neita að leggja hátekjuskatt á borgara þessa lands, enda stangist skatturinn á við jafnræðisreglu stjórnarskrár. argir yrðu Indriða óskaplega þakklátir -- þótt hæpið sé að lofa því að fjölmiðlar hylli hann sem alþýðuhetju.