:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Almannahagsmunir ráða úrslitum

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður B.Í.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður B.Í.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður Blaðamannafélagsins, segir í Fréttablaðinu í dag að fái fjölmiðlar illa fengnar upplýsingar, hljóti að vera horft til þess hvort almannagasmunir réttlæti birtingu þeirra. Þetta segir Þóra Kristín í tilefni af fréttum um að stolin gögn með trúnaðarupplýsingum lögmanns um ýmsa viðskiptavini hans hafi verið falboðnir fjölmiðlum.  Í Morgunblaðinu í morgun er Eiríkur Tómasson lagaprófessor einnig spurður um þetta mál og er svar hans efnislega það sama, þ.e. að eðli upplýsinganna ráði úrslitum um hvort réttlætanlegt sé að birta þær.

 

Frétt Fréttablaðsins er annars svona í heild sinni:

Verður að horfa til almannahagsmuna
„Formaður Blaðamannafélags Íslands, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, segir siðareglur félagsins ekki taka til kaupa á upplýsingum. Eins og fram hefur komið sætir sautján ára piltur nú lögreglurannsókn vegna gruns um að hann hafi tekið ófrjálsri hendi tölvugögn með trúnaðarupplýsingum frá Glitni og Milstone.  Stöð 2 segir piltinn hafa boðið þessi gögn til kaups en að þeim viðskiptum hafi verið hafnað.  DV hefur birt  tlsvert margar fréttir með upplýsingum um áðurnefnd fyrirtæki; stjórnendur þeirra og viðskiptavini.  Reynir Traustason, ritstjóri DV, neitaði í Fréttablaðinu í gær að gefa upp hvaðan þær upplýsingar blaðsins eru fengnar.
„Nú veit ég ekki frekar en aðrir hvort og þá hvernig DV tengist þessu máli,“ segir formaður Blaðamannafélagsins um hin meintu stolnu gögn. „Það er náttúrulega ljóst að það er ólöglegt að versla með þýfi en fái fjölmiðill í hendur  upplýsingar sem gætu verið illa fengnar eða brotið á rétti fólks til einkalífs, þá hlýtur að vera horft til þess hvort almannahagsmunir réttlæti birtingu.“
Þá segir Þóra Kristín flesta fjölmiðla hafa það fyrir vinnureglu að kaupa ekki upplýsingar en siðareglur BÍ taki ekki til þess atriðis. „Mér er ekki kunnugt um hvernig því er farið í vinnureglum DV,“ segir formaðurinn.“

Þess má geta að Jón Trausti Reynisson skrifar leiðara í tilefni þessa máls í blað sitt í dag.



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning