Albanía: Dómstóll dæmir gegn falinni myndvél

„Þessi úrskurður dómstólsins er nánast eins mikið hneyksli og þær siðlausu athafnir sem afhjúpaðar voru í þessari frétt,“ segir Aidan White framkvæmdastjóri IFJ. „Þessi dómur má ekki standa óhaggaður og honum verður að áfrýja,“ segir hann ennfremur.
Dómsniðurstaðan byggði á þeim rökum að með því að afla upplýsinganna með falinni myndavél og á fölskum forsendum hafi persónuvernd ráðherrans verið vanhelguð og því bæri sjónvarpsstöðinni að bæta fyrir þann miska. Alþjóða blaðamannasambandi segir að þessi niðurstaða - fengi hún að standa - myndi takmarka mjög verulega möguleika fjölmiðla til að beita ýmsum aðferðum rannsóknarblaðamennsku og þannig sinna hlutverki sínu og veita stjórnvöldum eðlilegt aðhald. Einnig er það skoðun Alþjóða blaðamannasambandsins aðþessi niðurstaða gangi gegn því sem Mannréttindadómstóllinn í Strassborg áður dæmt í sambærilegum málum.





