Áhugaverð NJC námskeið fyrir íslenska blaðamenn

Norræni blaðamannaskólinn í Árósum (NJC) býður á næsu vikum og mánuðum upp á áhugaverð
námskeið sem íslenskir blaðamenn eiga kost a að sækja. Félagar í B.Í. til eiga möguleika á að fá styrki úr
Menningarsjóði félagsins til að sækja endurmenntun í NJC. Námskeiðin sem hér um ræðir eru tvö, annars vegar
"Menningarmót blaðamanna", sem haldið hefur veirð víða um Norðurlönd og raunar Evrópu á undanförnum árum, og svo hins vegar
"Árósarnámskeiðið 2010".
Menningarmótið felst í því að NJC stefnir norrænum menningarblaðamönnum á kvikmyndahátíð og til að skoða
byggingarlist og er skráningarfrestur á þetta námskeið til 1. Febrúar. Sjá hér
Árósarnámskeiðið hins vegar kallast að þessu sinni “Norræn sýn á framtíðina” og er þetta sex vikna
námskeið um stjórnmál og menningu á Norðurlöndum og á námskeiðinu verður farið í ýmsar ferðir, m.a. til
Reykjavíkur, Brussel og Kaupmannahafnar. Sjá
hér





