:::PRESS.IS:::

Blađamannafélag Íslands

Fréttir

Sumarleiga á orlofshúsum

Séđ heim ađ orlofshúsum B.Í. í Brekkuskógi

Vakin er athygli á því að byrjað er að taka á móti umsóknum um orlofshús B.Í fyrir sumarið. Sumartímabilið er frá maí - september, alls 14 vikur. Félagar í B.Í. geta sótt um og er umsóknarfrestur 9. apríl. Hægt er að sækja um með því að smella á tengilinn "Orlofshús" hér til hliðar og fara þaðan í tengil sem heitir "umsókn" en þar velja menn hvaða vikur þeir sækja um og í hvaða orlofshúsi. Yfirlit yfir vikurnar er að finna undir tenglinum "orlofshús.


Sýning á myndum ársins í Gerđarsafni

Mynd ársins 2009

Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands, Myndir ársins 2009, er opin í Gerðarsafni í Kópavogi alla daga nema mánudaga frá klukkan 11-17. Aðgangur er ókeypis að sýningunni, en á henni eru rúmlega 150 bestu blaðaljósmyndir liðins árs, auk þeirra mynda sem verðlaunaðar voru sem bestu myndir ársins í eftirfaranndi flokkum:  Mynd ársins, fréttamynd ársins, íþróttamynd ársins, portrettmynd ársins, tímaritamynd ársins, umhverfismynd ársins, daglegt líf,  þjóðlegasta myndin, skoplegasta myndin og myndröð ársins.  Einnig eru á sýningunni sýnd bestu myndskeið ársins 2009.


Getur hönnun bjargađ dagblöđum?

Jacek Utko

Pólski dagblaðahönnuðurinn Jacek Utko, sem er hönnunarstjóri hjá Bonnier Business Press í Varsjá í Póllandi hefur í tvígang unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir best hannaða dagblað í heimi. Þetta var annars vegar pólskt blað og hins vegar eistneskt.  Utko hefur mjög ákveðnar skoðanir á því hvers vegna blöð séu á undanhaldi sem fjölmiðlar og telur að hönnun geti skipt mjög miklu máli ef hún sé markviss og í samræmi við það sem efni blaðsins fjallar um og þau markmið sem útgáfan hefur sett sér.

 


DV til sölu


Reynir Traustason ritstjóri DV er nú að safna um sig hópi manna til að kaupa DV, en útgáfufélagið Birtingur hefur ákveðið að selja blaðið.  Reynir sagði í samtali við RÚV í dag að hann myndi ekki leita til svokallaðra "útráðsarvíkinga" um fjármögnun en orðrómur hefur verið uppi um að Jón Ásgeir Jóhannesson væri einn þeirra sem myndi koma ða fjármögnun.

Sjá frétt RÚV hér


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning